Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1964
254,4 m²
7 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Opið hús: 31. mars 2026
kl. 16:00
til 17:00
Lýsing
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Fallegt og mikið uppgert einbýli á tveimur hæðum auk bílskúrs við Suðurbyggð 7 á Akureyri - samtals 254,4 m²
Íbúðarhúsið er steypt og byggt árið 1964 og telur samtals 222,4 m² sem skiptist í 137,0 m² efri hæð og 85,4 m² neðri hæð/kjallara.
Bílskúrinn var byggður árið 1985, forsteyptur og er hann skráður 32,0 m² að stærð en auk þess er undir honum jafn stór óskráð geymsla með lítilli lofthæð. Eignin er vel staðsett í Suðurbyggðinni, syðst og austast og lóðin er skráð 775,0 m² að stærð.
Húsið hefur mikið verið tekið í gegn af núverandi eigendum á síðustu þremur árum.
Að innan voru allar innréttingar og gólfefni endurnýjuð, gólfhiti settur í allt húsið, hitaveitugrind og rafmagnstafla endurnýjuð og settur upp varmaskiptir, útveggir allir einangraðir uppá nýtt og múraðir, innveggir endurnýjaðir, sér smíðaðar innihurðar með felliþröskuldi, öll lýsing endurnýjuð og allar raflagnir endurnýjaðar. Klætt var uppí öll loft, ný rakasperra sett og klætt með gipsi.
Að utan var húsið múrviðgert og málað, þak tvígrunnað og málað sem og þakktantur, gluggar slípaðir og málaðir, skipt um gler í suðurhlið svefnálmu. Vestur- og suðurhlið voru drenaðar og undir jarðvegi var einangrað og settur takkadúkur.
Efri hæðin skiptist í forstofu, hol, eldhús og stofu í rúmgóðu opnu alrými, svefnherbergi, baðherberig og þvottahús.
Neðri hæðin skiptist tvö svefnherbergi, baðherbergi, sjónvarpshol, tvær geymslur og tæknirými.
Bílskúrinn er stakstæður og stendur norðan við íbúðarhúsið og undirhonum er jafnstór óskráð geymsla.
Forstofan er með flísum á gólfi og góðri sambyggðri innréttingu með skóskáp, hyrslum og bekk. Einnig er stór fataskápur á holi rétt við forstofu.
Hol og gangur eru með parketi á gólfi og þar er vegghengdur skenkur með marmara bekkplötu sem getur fylgt með við sölu.
Eldhúsið er með parketi á gólfi og IKEA innréttingu með HAF Store framhliðum, stórum innbyggðum ísskáp og litlum innbyggðum frysti, tveimur ofnum og spanhelluborði. Kvartsít steinn frá Granítsmiðjunni er á bekkjum.
Stofan og eldhúsið eru í einu rúmgóðu opnu alrými með gluggum til þriggja átta. Parket er á gólfi og útgangur í garð til vesturs. Innfelld lýsing og óbein lýsing sem setur skemmtilegan svip á rýmið.
Sjónvarpshol er á neðri hæð og þar er lakkað gólf, innfelld lýsing og veggfóður á einum vegg.
Baðherbergin eru tvö, eitt á hvorri hæð. Baðherbergi efri hæðar er með walk-in sturtu og baðkari. Steinefnaspartl á öllum veggjum og lofti, blöndunartæki, baðkar og klósett er frá Lusso Stone. Viðarinnrétting (HAF Store framhliðar) með bekkplötu úr onyx steini frá Granítsmiðjunni með innbyggðum vaski. Led lýsing er á bakvið spegil, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Baðherbergi neðri hæðar er með walk-in sturtu og er einnig með steinefnaspartl á veggjum og lofti, blöndunartæki og klósett frá Lusso Stone og innrétting með HAF Store framhliðum.
Svefnherbergin eru fjögur í húsinu, tvö á hvorri hæð auk þess sem möguleiki er að bæta við fimmta herberginu með breytingu á sjónvarpsholi. Parket er á gólfum herbergja á efri hæð og fataskápar í þeim báðum. Lökkuð gólf eru á herbergjum neðri hæðar. Hjónaherbergið er rúmgott, með góðu skápaplássi og innaf því er baðherbergi efri hæðar.
Þvottahús er með góðri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, bekk með vaska og handklæðaofn.
Geymslupláss er gott í húsinu en tvær geymslur eru á neðri hæð og önnur þeirra mjög rúmgóð auk 32 m² geymslu undir bílskúr.
Bílskúrinn er stakstæður og stendur norðan við húsið og er hann einangraður og með rafmagni, en ómálaður. Geymslan undir skúrnum er með inngang á austurhlið hans og að henni er farið um steypta stétt og tröppur á milli húss og skúrs. Þessi geymsla er ekki upphituð en einangruð með óvörðu froðuplasti.
Lóðin er stór og gróðursæl og opið svæði er sunnan við húsið. Rúmgott bílaplan er fyrir framan bílskúrinn. Ummerki um rakst eftir að drenað var við húsið á vestur og suðurhlið.
Annað
- Öll lýsing í húsinu er innfelld, í Plejd og hægt að stjórna í símanum ásamt gólfhitanum í sama kerfi (Heimastýring)
- 16mm viðarparket á allir efrihæðinni að votrýmum undanskildum, en þar eru flísar.
- Ullarteppi er á stiga á milli húsa.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Öll íbúðarrými hafa verið nýlega máluð.
- Nýjar heimtaugar fyrir kalt vatn og rafmagn.
- Vel staðsett eign á horn-lóð syðst í Suðurbyggð.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
31. maí. 2023
79.450.000 kr.
86.500.000 kr.
254.4 m²
340.016 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026