Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Kjarnagata 65 íbúð 204

600 Akureyri

71.500.000 kr.

817.143 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2515189

Fasteignamat

60.800.000 kr.

Brunabótamat

54.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2022
svg
87,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax
Opið hús: 17. mars 2026 kl. 16:15 til 17:00

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Kjarnagata 65 íbúð 204 - Nýleg 3-4ra herbergja íbúð með sér inngangi á efri hæð í norður enda í litlu fjölbýlishúsi í Hagahverfi - stærð 87,5 m²
Virkilega skemmtilegt útsýni er úr íbúðinni


- Vandaðar innréttingar frá GKS, svartar plastlagðar, Nero oak.
- Hvítar innihurðar

- Innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgja með við sölu eignar
- Hljóðdempandi plötur í öllum loftum íbúðar nema baðherbergi.
- Innfelld led-lýsing í öllum rýmum íbúðar og Plejd snjallstýring
- Aukin lofthæð
- Húsið er steypt og var íbúðin tekin í notkun árið 2023.


Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi (eitt skráð sem geymsla) og baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Í sameigninni er sér geymsla, skráð 3,3 m² að stærð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.


Forstofa og gangur eru með ljósu harðparketi á gólfi og svörtum skáp. 
Eldhús, vönduð L-laga svört plastlögð innrétting (Nero oak) með grárri borðplötu og svörtum vask. Mjúklokun er á skúffum og skápum. Uppþvottavél og ísskápur með frysti eru innbyggð í innréttingu og fylgja með við sölu eignar.
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem ljóst harðparket er á gólfi, gluggar til tveggja átta og rennihurð út á steyptar vestur svalir, skráðar 8,2 m² að stærð. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði með ljósu harðparketi á gólfi og svörtum plastlögðum fataskápum. Stærð svefnherbergja er skv. teikningum 9,1 og 11,8 m².
Geymsla hefur verið nýtt sem þriðja svefnherbergið, þar er harðparket á gólfi og fataskáp. Stærð geymslu er skv. teikningum 8,3 m².
Baðherbergi er með gráum flísum á gólfi og hluta veggja, svartri plastlagðri innréttingu og speglaskáp, upphengdu wc og walk-in sturtu. Stæði er í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. 
Sér geymsla er á jarðhæðinni, skráð 3,3 m² að stærð.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. jan. 2024
51.300.000 kr.
60.000.000 kr.
87.5 m²
685.714 kr.
1. jún. 2023
45.600.000 kr.
59.990.000 kr.
87.5 m²
685.600 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone