Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1931
189 m²
8 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Sérinngangur
Lýsing
Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Suðurgata 25, Ásahús 159,6 fm einbýlishús auk geymsluskúrs á lóð skráður 29,4 fm. alls 189 fm. Hús með tveimur íbúðum og báðar íbúðir í útleigu.Sjarmerandi einbýlishús sem er kjallari, hæð og ris. Húsið er í dag nýtt sem tveggja íbúða hús. 2ja herb. aukaíbúð í kjallara með sérinngangi.
Kjallari: sérinngangur, forstofa og köld geymsla ( er einangruð ) inn af forstofu. Stofa í miðrými. Hjónaherbergi með góðu skápaplássi. Baðherbergi með sturtuklefa, tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baði, flísar á gólfi. Rúmgott eldhús með tengi fyrir uppþvottavél og borðkrókur.
Miðhæð og ris : Í risi eru 3 svefnherbergi og sjónvarpshol, hátt til lofts og furufjalir á gólfi, fataskápur í einu herbergi. Geymslurými yfir einu herbergi í risi.
Miðhæð, forstofa með fata og skóskáp, úr holi er stigi upp í ris. Stofa og borðstofa, auk eldhúss með ljósri viðarinnréttingu, uppþvottavél í innréttingu fylgir. Geymsla undir stiga inn af holi. Baðherbergi með sturtuklefa, tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baði, flísar á gólfi baðherbergis.
Miðhæðin og ris er í útleigu, möguleiki á að yfirtaka núgildandi leigusamninga.
Húsið er í alla staði reisulegt og fallegt, þær endurbætur sem hafa verið gerðar eru taldar upp hér að neðan og eru byggðar á upplýsingum frá núverandi og fyrri eigendum. Færanlegur geymsluskúr á lóð við gafl hússins sem er nýttur sem geymsla c.a 6 fm.
Endurbætur á liðnum árum eru unnar upp úr eldra söluyfirliti :
Fyrri eigendur lögðust í eftirfarandi endurbætur frá árinu 2000 til 2020, Hús klætt að utan og nýtt járn á þak sett. Veggir á miðhæð og í risi einangraðir ásamt lofti. Samhliða þessu voru vatns og rafmagnslagnir endurnýjaðar. Skipt var um nokkra glugga á miðhæð og í risi. Drenglögn endurnýjuð á tveimur hliðum, Suðurgötu og Vitateigsmegin. Skolplagnir eru úr plasti og voru endurnýjaðar fyrir 2007 að sögn fyrri eiganda.
2020: voru eftirfarandi endurbætur gerðar : Baðherbergi á miðhæð, baðkar fjarlægt og sturtuklefi settur, nýr gluggi í forstofu.
2021: Íbúð í kjallara innréttuð, gólf flotað og ný gólfefni, loftaklæðing og loftljós, eldhúsinnrétting, vatns og rafmagnslagnir í eldhúsi, geymsla inn af forstofu einangruð, drenlögn sett meðfram báðum hliðum lóðar.
2022: Brunastigi upp í ris settur, 3 nýjir gluggar í risi settir ( brunaútgangur) og nýr gluggi í svefnherbergi kjallara ( brunaútgangur ) Miðhæð og ris heilmálað.
2023: Skjólveggur á lóð úr Lerki meðfram garði, nýtt jarðskaut fyrir húsið, loftgæði og myglusýni tekið hjá Mannvirkjastofu frá 2023 ( fylgir söluyfirliti )
Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. apr. 2024
60.750.000 kr.
84.900.000 kr.
189 m²
449.206 kr.
18. nóv. 2020
40.600.000 kr.
47.500.000 kr.
189 m²
251.323 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026