Lýsing
ÍBÚÐ 201 EFRI HÆÐ. Íbúðin er 80,8 m², þar af geymsla 3,6 m² samkvæmt skráningu HMS. Sér inngangur er í íbúðina.
Skipulag íbúðar: Forstofa, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Í sameignarrými: Sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla.
Nánari lýsing:
Forstofa með þreföldum fataskáp og flísar á gólfi.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er frá stofu út á svalir með glerhandriði og timburskjólvegg við næstu svalir.
Eldhús með Brúnás innréttingu, eyja. Helluborð á eyju, ofn í vinnuhæð og stálvaskur með einnar handar blöndunartækjum. Gert ráð fyrir uppþvottavél og op fyrir ísskáp er 186 cm á hæð. Ofan við eyju er tenging fyrir háf og ljós (fylgir ekki).
Herbergi I, hjónaherbergi, fimmfaldur fataskápur.
Herbergi II, tvöfaldur fataskápur.
Baðherbergi með flísum á gólfi, sturta, vaskinnrétting og speglaskápur, upphengt salerni. Veggir sturtuhorns baðherbergis er flísalagt.
Þvottahús er inn af baðherbergi, pláss fyrir tvær vélar í innréttingu og stálvaskur í borði í innréttingu.
Sér geymsla ásamt vagna- og hjólageymslu er á neðri hæð hússins.
Innréttingar eru frá Brúnas innréttingum með eikaráferð.
Íbúðin er kynnt með rafmagnsofnum. Í forstofu og baðherbergi er rafmagnsgólfhiti.
Gólfefni: Harðparket á alrými og herbergjum. Flísar á forstofu og baðherbergi og þvottahúsi.
Hljóðdúkur er í lofti. Reykskynjarar, slökkvitæki og læstur lyfjaskápur fylgja íbúðinni.
Sólbakki 2 er 11 íbúða tvílyft hús. Útveggir eru forsteyptir. Gólfplötur eru staðsteyptar. Þak er hefðbundið uppstólað risþak, með báruklæðningu.
Útihurðar, gluggar og svalahurðar eru timbur/ál með tvöföldu K-gleri.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | [email protected]
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – [email protected]
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala