Opið hús: Selvað 1, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 4. febrúar 2026 milli kl. 16:00 og kl. 16:15.
Lýsing
Eignin telur anddyri, eldhús, þaksvalir, stofu og borðsstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, sér geymslu í sameign og stæði í bílakjallara.
Nánari lýsing:
Anddyri: með harðparketi á gólfi og rúmgóðum fataskápum
Stofa og borðstofa: samliggjandi bjart rými með harðparketi á gólfi og útgengi á hellulagðar þaksvalir
Eldhús: með harðparketi á gólfi, viðarinnréttingu, ný borðplata, ný tæki. Fallegt útsýni úr eldhúsglugga
Herbergi 1: bjart og rúmgott með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum
Herbergi 2: með harðparketi á gólfi. Herbergið er skráð sem vinnuherbergi á teikningum og hefur verið stækkað frá upprunalegri teikningu og nýtist því ágætlega.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf með rúmgóðri innréttingu, baðkari með sturtu og handklæðaofni
Þvottahús: með flísum á gólfi, vaski og hillum
Þaksvalir: eru 16,7 m² samkvæmt Þjóðskrá Íslands en þær eru hellulagðar og með góðu útsýni
Í sameign er sér geymsla og sameiginleg hjólageymsla.
Sér bílastæði er í lokaðri bílageymslu
Nýlegar framkvæmdir:
2021: Stigangar málaðir og teppalagt
Skipt um ljós í bílakjallara
2022: Háþrýstiþvegið og sílanborið að utan. Gluggar málaðir að utan.
2023: Lagt rafmagn fyrir bílahleðslustöðvar í kjallara, Bílastæði úti og inni málað
Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson sími 7751515 - [email protected] löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.