Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Vista
fjölbýlishús

Klukkuberg 13

221 Hafnarfjörður

74.900.000 kr.

707.271 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2077067

Fasteignamat

77.650.000 kr.

Brunabótamat

52.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1991
svg
105,9 m²
svg
5 herb.
Opið hús: 25. mars 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Klukkuberg 13, 221 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 02 04. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 25. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Erling Proppé lgf. & REMAX kynna fallega 4ra herbergja eign með útsýni að Klukkubergi 13, 220 Hafnarfirði. 

Fasteignamat 2026 er kr. 77.650.000,- ! 

Um er að ræða 105,9 fm 4ra herbergja íbúð á tveimur hæðum með sér inngangi.
Neðri hæðin skiptist í forstofu, stofu, stigahol og opið eldhús með þvottahúsi. Efri hæðin skiptist í þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
 
Framkvæmdir utanhúss:
Þakgluggi endurnýjaður (2019)
Sprunguviðgerðir (sumar 2025)
Hleðslustöðvar settar upp (sumar 2025)
Geymsluskúrar klæddir að utan (sumar 2024).
Samþykktar framkvæmdir húsfélags á gluggum hússins verða greiddar af seljanda og fylgja því með í kaupunum. 

Nánari lýsing:
Á neðri hæðinni er komið inn um sérinngang inn í flísalagða forstofu.
Stofan, borðstofan og eldhúsið er í mjög rúmgóðu og björtu opnu rými. Þar er gegnheilt parket á öllu nema eldhúsi.
Á efri hæðinni er parketlagður gangur og þakgluggi yfir stigaopinu sem gefur góða birtu á ganginn. Svefnherbergin eru 3, öll parketlögð og rúmgóð. Fataskápar eru í öllum herbergjum. Útgengt er á suðursvalir frá hjónaherberginu. Baðherbergið hefur verið endurnýjað og er það flísalagt með sturtu og glugga.

Eigninni fylgir sérgeymsla en einnig er sameiginleg 32 fm hjólageymsla í sérbyggðu húsi framan við inngang.

Góð og björt íbúð með útsýni staðsett í fjölskylduvænu hverfi í göngufæri við leikskóla og grunnskóla, auk þess er stutt á setbergs golfvöllinn og ýmis útivistarsvæði. 

Allar nánari upplýsingar:
Erling Proppé lgf. sími 690-1300 eða [email protected]


Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. okt. 2022
70.750.000 kr.
10.000.000 kr.
650.3 m²
15.378 kr.
20. ágú. 2021
51.200.000 kr.
58.200.000 kr.
132.9 m²
437.923 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone