Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
einbýlishús

SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia

953 Spánn - Costa Blanca

116.000.000 kr.

408.451 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F1022601

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
284 m²
svg
4 herb.
svg
3 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ ÁSAMT KJALLARA – FLOTT RESORT*
Vönduð og falleg einbýlishús á frábærum stað Í hinu nýja og glæsilega 700.000 fm., SANTA ROSALIA LAKE AND LIFE RESORT. Santa Rosalia stöðuvatnið er miðpunktur svæðisins og stærsta manngerða stöðuvatn í Evrópu, 16.000 fm.,  Þar er frábær aðstaða, sandströnd, eyja til að vaða út í, góð aðstaða fyrir vatnaíþróttir og ýmislegt fleira. Á svæðinu er einnig ævintýra golfvöllur, frisbígolfvöllur, göngu-, skokk og hjólaleiðir, picknick svæði, jogasvæði, leikvellir fyrir börnin og ótal margt fleira skemmtilegt. Við vatnið og golfvöllinn er glæsilegur strand- og golfklúbbur, með veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Einnig verður matvöruverslun á staðnum, en stutt er í litla bæi í kring með góðu úrvali af verslunum og veitingastöðum. Örstutt frá ströndinni og bátahöfninni (4 km. 15 mín. á hjóli) í Los Alcazares. Mar Menor golfvöllurinn er í göngufæri, en einnig eru fjölmargir fleiri golfvellir á svæðinu. Ca. 1 klst. akstur í suður frá Alicante flugvelli, 30 mín. akstur frá Corvera, nýja alþjóðlega flugvellinum í Murcia.
Frábært tækifæri til að eignast glænýtt og fallegt einbýlishús á góðum stað í sólinni á frábæru verði. Dásamleg fjölskylduparadís.

ALGJÖR NÝJUNG Á FASTEIGNAMARKAÐNUM Á SPÁNI. 


AÐEINS ÖRFÁ HÚS Í BOÐI

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. [email protected]
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, [email protected] GSM 0034 615 112 869,
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 00354 777 4277. [email protected]


Nánari lýsing:
Húsið er sérlega vel skipulagt, þar sem  dagrými og svefnrými er skemmtilega aðgreint. Allt á einni hæð: Stór stofa, borðstofa og eldhús í björtu og opnu rými. Þrjú rúmgóð svefnherbergi og þrjú  baðherbergi. Útgengi út í garð frá öllum svefnherbergjum. Tvær góðar verandir, sér garður með 18 fm.  einkasundlaug. Úti og innirými eru vel tengd og mynda skemmtilega heild.
Yfirbyggt bílastæði inni á lokaðri lóð.  Útieldhús, sem skapar skemmtilegt tækifæri fyrir notalegar stundir með fjölskyldu og vinum.
Óinnréttaður 144 fm.  kjallari undir húsinu fylgir og er hægt að fá aðstoð arkitekts við að fullinnrétta hann. Hægt er að nýta kjallarann á ýmsa vegu, td. fyrir aukasvefnherbergi, vinnuaðstöðu eða tómstundarrými. "English patio" tryggir gott birtuflæði í kjallarann.
Stór þakverönd, 93 fm. þar sem hægt er að hafa flotta aðstöðu.
Garðurinn er sérlega skemmtilegur, með góðu rými í kringum sundlaugina, til að grilla og njóta lífsins með fjölskyldu og vinum.

Sérlega metnaðarfull hönnun þar sem tekið er tillit til umhverfis og náttúru. Svæðið er gróið og fallegt.
Vandaðar og fallegar innréttingar. Hiti í gólfum í baðherbergjum.

Hægt er að fá húsin fullbúið húsgögnum gegn aukagjaldi, þannig að ekkert er eftir nema að kaupa í matinn og flytja inn.

Örstutt göngufæri er að Santa Rosalia stöðuvatninu með frábærri sólbaðsaðstöðu, ströndum, og möguleika á ýmsum skemmtilegum vatnaíþróttum. Þar er líka glæsilegt klúbbhús, líkamsrækt, ævintýragolfvöllur ofl.
Ca. 15 mín. tekur að hjóla niður á á skemmtilegu göngugötuna í Los Alcazares, sem liggur niður á fallega sandströnd. Fjöldi verslana og veitingastaða eru þar á svæðinu. Meðfram ströndinni er margra kílómetra langt “promenade” sem býður upp á skemmtilega göngutúra. Glæsileg smábáta og snekkjuhöfn og fjölbreytt mannlíf. Fjölmargir vinsælir og skemmtilegir golfvellir eru í næsta nágrenni og hinn vinsæli Mar Menor er í göngufæri frá Santa Rosalia svæðinu.

Verð miðað við gengi 1Evra=145ISK.
Einbýlishús á einni hæð(140 fm) + stór óinnréttaður kjallari (144fm) + þakverönd(93fm ) samtals 377 byggðir fm. Verð frá 800.000 Evrur  (116.000.000 ISK) + 10% skattur og ca. 3%kostn. við kaupin. ca. 13%
Við þetta bætist kostnaður við að fullinnrétta kjallarann eftir óskum kaupanda.

Los Alcazares, sem er í næsta nágrenni, er ekta spænskur strandbær með fjölbreyttu bæjarlífi, útimarkaði og götuhátíðum.
Hér gefst því einstakt tækifæri til að eignast vandað og fallegt einbýlishús með nútímaþægindum í sjarmerandi umhverfi.
Skólar og heilbrigðisþjónusta í næsta nágrenni.
Los Alcazares stendur við Mar Menor, lítið innhaf frá Miðjarðarhafinu, og er þar mikil veðursæld.  Að meðaltali  eru þar um 305 sólardagar, 30 skýjaðir og 30 rigningardagar á ári.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: strönd, ný eign, sér garður, þakverönd, kjallari, golf,
Svæði: Costa Calida, Los Alcazares, Santa Rosalia, Mar Menor,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.