Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1984
68,17 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 19. júní 2025
kl. 17:30
til 18:00
***OPIÐ HÚS FIMMTUDAGINN 19. JÚNÍ FRÁ 17:30 - 18:00***
Lýsing
Fasteignasalan TORG kynnir: Rúmgóða tveggja til þriggja herbergja íbúð á annari hæð í fallegu húsi við Hrísmóa 6, 210 Garðabæ. Eignin er skráð 61,1 fm en til viðbótar er 7,07 fm geymsla á fyrstu hæð sem er ekki inn í skráðum fermetrum, samtals 68,17 fm. Eignin skiptist í anddyri, svefnherbergi, rúmgott baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, eldhús og rúmgóða stofu. Frá stofu er gengið út á svalir í suð-austur. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali í síma: 767-0000 eða [email protected]
Nánari lýsing: Eignin er á annari hæð (mið hæð) en er skráð 302 þar sem hún er á þriðju hæð frá götu. Gengið er inn í rúmgott anddyri og þaðan inn í stórt alrými sem rúmgar stofu, borðstofu og eldhús. Stofan var áður stúkuð af að hluta fyrir lítið barnaherbergi. Eldhúsið er með upprunalegri innréttingu með nýlegri uppþvottavél, bakaraofni, helluborði, viftu og ísskáp. Frá stofu er gengið út á rúmgóðar svalir til suð-austurs. Baðherbergið er með ljósri innréttingu með handlaug, salerni og sturtu. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherberginu. Svefnherbergið er með upprunalegum innbyggðum fataskápum. Á fyrstu hæð er 7,07 geymsla sem er ekki inn í skráðum fermetrum sem til heyrir eigninni.
Endurbætur: Sameignin er mjög snyrtileg og hefur húsið fengið ágætis viðhald í gegnum árin. Að sögn seljanda var farið í endurbætur á húsinu árið 2023 og var þá farið í múrviðgerðir á ytra byrði og húsið málað, hiti settur í tröppur utandyra og tröppur múraðar, svalir múraðar ásamt því að stigagangur og geymslugangur var málaður, skipt var um teppi og lýsingu á stigagangi.
Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali í síma: 767-0000 eða [email protected]

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. jan. 2007
14.560.000 kr.
15.500.000 kr.
61.1 m²
253.682 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025