Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
einbýlishús

SPÁNAREIGNIR - Benijofar

953 Spánn - Costa Blanca

55.100.000 kr.

235.470 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F1021604

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
234 m²
svg
4 herb.
svg
3 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐ EINBÝLISHÚS Í NOTALEGUM SPÆNSKUM BÆ* – *GOTT VERÐ*

Falleg, rúmgóð og vel hönnuð einbýlishús á tveimur hæðum ásamt kjallara og þakverönd. Lokaður garður og einkasundlaug. Frábær staðsetning í Benijofar, ekta spænskum bæ, um 45 mín akstur suður af Alicante. Þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi, góð stofa og borðstofa og rúmgott eldhús. Stórt rými í kjallara sem hægt er að nýta sem vinnuaðstöðu, tómstundarrými, sjónvarpsherbergi og/eða gestaaðstöðu. Þvottahús og geymsla. Verönd  út frá stofu og einkasundlaug. Svalir út frá svefnherbergjum á efri hæð.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.  [email protected]. 00354 893 2495
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. [email protected]. 0034 615 112 869.
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. [email protected]. 00354 777 4277.

Nánari lýsing:

Aðalhæð: Komið er inn í opið rými þar sem er stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými . Svefnherbergi og baðherbergi. Útgengi út á verönd og garð með einkasundlaug.
Efri hæð: Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Útgengi út á  svalir frá báðum svefnherbergjum.
Kjallari: Stórt opið rými sem hægt er að nýta sem vinnurými, tómstundarherbergi, sjónvarpsstofu eða gestaaðstöðu.

Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. 
Rafmagnstæki í eldhúsi fylgja og auk þess þvottavél.
Stæði fyrir bíl í lokuðum garði.

Garðurinn er hellulagður að mestu.. Einkasundlaug, sem tengist vel góðri verönd út frá stofu. Þar er gott pláss  t.d. til að borða úti eða njóta sólarinnar við sundlaugarbakkann.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa, og  La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.

Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 15-20 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Benijofar er skemmtilegur ekta spænskur bær á Costa Blanca svæðinu, í góðu umhverfi með sjarmerandi hefðbundnu spænsku bæjarlífi, Fiestum og götumarkaði, verslunum og veitingastöðum. Ca. 20-30 mín. akstur í suður frá Alicante flugvellinum. Ca. 10 mín. akstur á tvo góða golfvelli, La Finca og La Marquesa, og ótal fleiri góðir golfvellir eru í innan við 20 mín akstursleið frá Benijofar. Aðeins 8 km. frá fallegu ströndunum á Costa Blanca og ekki nema 2-3 mín akstur eða góður göngutúr til Ciudad Quesada og Dona Pepa, sem eru vinsælir og líflegir bæir sem iða af mannlífi allt árið.
Þetta er því staðsetningin fyrir þá sem vilja upplifa ekta spænskt umhverfi, en njóta þæginda og þjónustu nútímans.


Verð (gengi 1Evra = 145 ISK):
Verð frá 380.000 evrum  (ISK 55.100.000)  + 10% skattur og ca. 3% kostn. v. kaupa.
Húsin eru tilbúin til afhendingar í júlí - desember 2025.

Húsið er 118 fm.
Kjallari 78 fm.
Þakverönd 38 fm.
Samtals 234 sérafnotafm.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður. 

Mögulegt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum gegn aukagjaldi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: bílastæði, sér garður, air con, einkasundlaug, kjallari, þakverönd,
Svæði: Costa Blanca, Benijofar,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.