Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Styrmir Bjartur Karlsson
Vista
einbýlishús

Laufásvegur 7

101 Reykjavík

490.000.000 kr.

1.080.962 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2006558

Fasteignamat

217.000.000 kr.

Brunabótamat

190.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1918
svg
453,3 m²
svg
14 herb.
svg
4 baðherb.
svg
7 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

**Myndir í þessari auglýsingu eru einkaeign Croisette-Knight Frank, notkun þeirra utan fasteignavefsins er með öllu óheimil án leyfis fasteignasala**

**Vinsamlegast athugið að eignin er aðeins sýnd í einkaskoðun í samráði við fasteignasala**


CROISETTE – KNIGHT FRANK kynna í einkasölu eitt glæsilegasta einbýlið í miðbæ Reykjavíkur.  Húsið er byggt 1918 og er hlaðið steinhús úr íslensku grágrýti. Heildarflatarmál eignarinnar er 526 fm en skráðir fermetrar eru 453 fm. Húsið á sér mikla sögu en þar bjó Einar Benediktsson skáld um tíma með sinni fjölskyldu. Eignin er samtals fjórar hæðir með tveimur aðalhæðum, 150 fm íbúð með sérinngangi á jarðhæð og risi með tveimur kvistum og gólffleti ca 75 fm. Umhverfis húsið er fallegur garður. Við húsið er upphituð innkeyrsla með hleðslustöð. Búið er að teikna stækkun á bílastæði fyrir tvo bíla til viðbótar. Þetta er einstök eign með mikla sögu sem núverandi eigendur hafa lagt mikla alúð við. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða [email protected] og Þorbirna Mýrdal, löggiltur fasteignasali í s. 888-1644 eða [email protected]

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3-D

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT.


Nánari lýsing á aðalhæð:
Forstofa: Rúmgóð forstofa með flísum á gólfi, góðum hvítlökkuðum skápum.
Eldhús: Opið eldhús með góðu skápaplássi, opið rými með borðstofu, parket á gólfi.
Stofur: Samliggjandi tvær opnar og bjartar stofur, 3,2 m lofthæð, marmara arinn, hvítlakkaðar útskornar hurðir við báða innganga, stórir gluggar, parket á gólfi.
Garðstofa: Stór og björt stofa með útgengi út á morgunsvalir, gluggar á þremur hliðum, parket á gólfi.
Gestasalerni: Lítið salerni, flísalagt upp á miðja veggi og flísar á gólfi.
Stigahol: Opið flísalagt hol sem tengir saman rýmin í eigninni, þaðan liggur glæsilegur stigi upp á aðra hæð. Teppi á stiga.

Nánari lýsing á annarri hæð:
Hjónaherbergi: Stórt og rúmgott herbergi mað skápum á heilum vegg. Útgengt úr á stórar 30 fm svalir. Parket á gólfi.
Barnaherbergi I: Gott herbergi að litlum hluta undir súð. Góðir skápar, parket á gólfi.
Barnaherbergi/skrifstofa: Gott herbergi sem er nýtt sem skrifstofa í dag. Góðir skápar, parket á gólfi.
Barnaherbergi III: Gott herbergi að litlum hluta undir súð. Góðir skápar, parket á gólfi.
Baðherbergi: Stórt og rúmgott baðherbergi, baðkar, sturta, salerni og vaskur, allt í gömlum stíl, hvítar flísar á gólfi og upp á miðja veggi. Góðir skápar.
Þvottahús: Að hluta undir súð, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gengið úr þvottahúsi uppá rishæðina.
Útgengt út á góðar norður útsýnissvalir úr svefnherbergisgangi.

Rishæð:
Opið rými með ca 75 fm gólffleti. Nýtt sem geymsla í dag en þarna má vel nýta rýmið í til dæmis tómstundaherbergi.

Jarðhæð:
Á jarðhæð er íbúð sem er ca 150 fm. Forstofugangurinn er með upprunalegum flísum sem setja fallegan svip á ganginn. Íbúðin skiptist svo upp í  tvö baðherbergi, rúmgott eldhús, borðstofu og stofu, þrjú svefnherbergi ásamt vinnurými/sjónvarpsrými.

Nánari upplýsingar veita: 
Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða [email protected] 
Þorbirna Mýrdal, löggiltur fasteignasali í s. 888-1644 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

Croisette Iceland ehf

Croisette Iceland ehf

Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík
Croisette Iceland ehf

Croisette Iceland ehf

Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík