Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Lilja Guðmundsdóttir
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Ingimar Óskar Másson
Kári Sighvatsson
Jenný Sif Ólafsdóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 1951
svg
267 m²
svg
5 herb.
svg
3 baðherb.
svg
6 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Til sölu heil húseign á þremur fastanúmerum, alls um 267 fermetrar. Húsið er skemmtilega hannað og hefur verið vandað til verka við byggingu þess, en húsið var byggt fyrir stórfjölskyldu. Hæðin og risið er í raun parhús með tveimur fullbúnum íbúðum á tveimur hæðum, sem deila inngangi og stiga milli hæða. Til viðbótar hefur áður verið lítil íbúð í hluta kjallarans.

Fastanúmer og stærðir:
F202-0873, íbúð merkt 001 í kjallara, skráð 67,6 fermetrar samkvæmt fasteignamati. 
F202-0874, íbúð merkt 0101 á fyrstu hæð og í risi. Fyrsta hæðin er skráð 43,7 fermetrar og risið 31 fermeter. Eigninni fylgir bílskúr merktur 02-0101, skárður 50 fermetrar. Samtals er eignarhlutinn skáður 124,7 fermetrar samkvæmt fasteignamati. F
F202-0875, íbúð merkt 0102 á fyrstu hæð og í risi. Fyrsta hæðin er skráð 43,7 fermetrar og risið 31 fermeter. Samtals er eignarhlutinn skáður 74,7 fermetrar samkvæmt fasteignamati. 

Íbúðirnar tvær á efri hæðum, 101 og 102, deila inngangi og stiga uppí risið.
Samtals er fasteignamat hússins 158 milljónir króna.

Allar nánari upplýsingar Ólafur H. Guðgeirsson, MBA rekstrarhagfræðingur, lgfs.í síma 663-2508, [email protected]


***Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.***

Húsið er samkvæmt fasteignaskrá sagt byggt árið 1960, en eigendur segja það byggt á árunum 1951 og 1952 af sömu fjölskyldu sem átt hefur húsið síðan. Lokaúttekt hússins fór fram 1960. Vandað var til verka við byggingu hússins á sínum tíma en viðhaldi hefur verið verulega ábótavant undanfarin ár.
Sem fyrr segir þá skiptast efri hæðir hússins í tvær íbúðir, hæð og ris, en deila inngangi og stiga af neðri hæð og í ris. Á neðri hæð beggja eigna er sameiginleg forstofa, rúmgóð og björt stofa, eldhús, gangur og aðgengi að stiga að kjallara. Rishæð beggja eigna skiptist í gang, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Í kjallara eru geymslur, þvottahús, vinnustofa og fleira, en hluti þessara rýma hefur verið nýtt sem sér íbúð með eldhúsi og baði.
Bílskúr er með stórum gluggum og gönguhurð í átt að garði.

Eignin er seld í því ástandi sem hún er og tekur seljandi enga ábyrgð á því sem kann að koma í ljós varðandi ástand hússins eftir sölu. Væntanlegir tilboðsgjafar eru þess vegna eindregið hvattir til að kynna sér ástand eignarinnar vandlega áður en gert er tilboð og nýta til þess þjónustu fagmanna, en seljandi mun leitast eftir að selja eignina til fagmanna á þessu sviði.

Fyrir rétta aðila er hér um að ræða mjög áhugaverða eign sem býður uppá ýmsa möguleika.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík