Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Pálmason
Vista
fjölbýlishús

Grandavegur 4

107 Reykjavík

109.500.000 kr.

901.977 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2025195

Fasteignamat

92.850.000 kr.

Brunabótamat

60.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1960
svg
121,4 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 10. júní 2025 kl. 17:00 til 18:00

Opið hús: Grandavegur 4, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 10. júní 2025 milli kl. 17:00 og kl. 18:00.

Lýsing

Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna fallega og mikið uppgerða 5 herbergja, 121.4fm endaíbúð á 1. hæð í vel viðhöldnu húsi teiknuðu af Þóri Baldvinssyni arkitekt að Grandaveg 4, 107 Reykjavík. Íbúðin er öll uppgerð, þar sem ma. eldhús var fært úr einu herbergjana yfir í stofu, Eldhúsinnrétting og tæki endurnýjað, baðherbergi standsett og komið fyrir innréttingu með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, gólfefni endurnýjuð á alla íbúðina, nýtt rafmagn dregið í alla tengla og rafmagnstafla endurnýjuð ofl. Allar framkvæmdir unnar af fagmönnum. Framkvæmdir útlistaðar nánar hér neðar í lýsingu. Húsið er 3 hæðir, kjallari og þakrými, steinsteypt með tvíhalla þaki. Í húsinu eru samtals 7 íbúðir. Hús stendur á fallegri, stórri og gróinni lóð með stórum grasfleti, stórum fallegum trjám ásamt sameiginlegu bílaplani húss með 12 sameiginlegum bílastæðum. Hús hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum. 

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg.fasteignasali í síma 661-6021 eða [email protected]

Fasteignamat eignar fyrir árið 2026 skv. HMS er 103.300.000kr


Eignin skiptist í forstofu / herbergjagang með fataskáp, 4 rúmgóð svefnherbergi með fataskápum, uppgert baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, mjög rúmgott og bjart alrými með samliggjandi stofu og eldhúsi, útgengt út á suðursvalir úr alrými. Sérgeymsla eignar er í sameignargangi í kjallara. Hitaveitukynding í húsinu með geislahitunarkerfi. Snyrtileg og vel umgengin sameign. Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi. Útgengi er út í garð á sv-gafli hússins. Rennslismælir fyrir heitt vatn er sameiginlegur fyrir allan matshlutann, og er skipt milli séreigna eftir hlutfallstölu hitakostnaðar. Séreignir hafa sérmæla. Sérstakur rafmagnsmælir er fyrir sameign. Rafmagnskostnaði vegna sameignar er skipt jafnt milli séreigna.

Vinsæl staðsetning í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í vesturbæ Reykjavíkur. Stutt í fjölbreytta og rómaða nærþjónustu vesturbæjarins s.s. Melabúðina, Kaffi Vest, Vesturbæjarsundlaugina o.fl. Skólar á öllum stigum í nágrenninu. Miðbær Reykjavíkur og Grandinn með afar fjölbreyttri verslun, þjónustu og afþreyingu í göngufjarlægð. Þá er ekki langt í fallegar göngu- og hjólaleiðir meðfram sjávarsíðunni og Ægissíðunni. 

Eignin Grandavegur 4 er skráð sem hér segir hjá FMR:
Eign 202-5195, birt stærð 121.4 fm, þar af er geymsla eignar merkt 010006 skráð 7,7fm

Framkvæmdir á húsi: 
2010 - Gluggar endurnýjaðir á NA hlið.
2011 - Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð og dregið nýtt rafmagn í þvottahús.  
2014 - Skólplagnir undir húsi og út í götu voru fóðraðar árið og brunnur endurnýjaður.
2016 - Gluggar á SV hlið ásamt svalarhurð endurnýjað
2017 - Húsið múrviðgert og málað árið (að undanskildum NA gafli sem var viðgerður 2013). Þak var einnig yfirfarið.
2018 - Gluggar á SA hlið endurnýjaðir. 
2024 - Stóri glugginn í stigagangi var endurnýjaður

Framkvæmdir í íbúð:
2020:
-
Lagt nýtt harðparket á öll gólf að undanskyldu baðherbergisgólfi.
- Nýir fataskápar í þrjú svefnherbergi og fram á gang.
- Rafmagn endurnýjað. dregið nýtt í alla tengla og rafmagnstafla endurnýjuð.
2022:
- Endurnýjað allar neysluvatnslagnir  og heitavatnslagnir.
- Allar hurðir endurnýjaðar. Skipt út gereftum og sett brunavarnar inngangshurð.
- Ný eldhúsinnrétting ásamt eldhústækjum.
- Baðherbergi alveg endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf, ný blöndunartæki, klósett og settir tenglar fyrir þvottavél og þurrkara sem eru nú inni á baði.
- Nýtt gler í gluggum inni á baði.

Eignin Grandavegur 4 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 202-5195, birt stærð 121.4 fm, þar af er geymsla eignar merkt 010006 skráð 7,7fm

Nánari lýsing:
Stigagangur: Allur hinn snyrtilegasti. Teppalagður. Gengið upp einn pall til að komast á íbúðarhæð. 2 íbúðir á palli.
Herbergjagangur: Tengir saman öll rými innan íbúðar.
4 svefnherbergi: Öll mjög rúmgóð og með fataskáp.
Baðherbergi: Alveg standsett árið 2022. Bað með sturtu og glerskilrúmi, upphengt klósett, handklæðaofn ásamt innréttingu með neðri skúffum, handlaug og efri speglaskáp með innbyggðri lýsingu. Innbyggð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Alrými: Mjög rúmgott, opið og bjart með samliggjandi eldhúsi, borðstofu og stofu. Útgengt út á suðursvalir. Fallegir stórir gluggar til suðurs og austurs sem gefur alrýminu góða og fallega náttúrulega birtu.
Eldhús:
Eldhús endurnýjað og fært inn í alrými árið 2022. Ljós innrétting með góðu skápa og vinnuplássi. Borðplata er úr akrílstein frá Fanntófell. Vaskur undirlímdur og innfelt spanhelluborð með gufugleypi. 2 ofnar í vinnuhæð, hefðbundinn ofn og combi ofn. Aðstaða fyrir tvöfaldann ísskáp.
Stofa: Samliggjandi og opin við eldhús. Rúmgóð og björt. Fallegir stórir gluggar sem hleypa góðri náttúrulegri birtu inn. Útgengt út á suðursvalir.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara á sameignargangi. 7,7fm.

Gólfefni: Nýlegt harðparket á öllum gólfum að undanskyldu baðherbergi sem er flísalagt.

Sameign: Sameiginlegt þvottahús þar sem hver er með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Einnig er hjólageymsla og gott aðgengi út í garð. Stigagangur í sameign er teppalagður og snyrtilegur.

Lóð: Húsið stendur á sér lóð, 1255fm. Fallegur tyrfður garður með stórum fallegum trjám fyrir framan hús. Austan megin við garð er sameiginlegt bílaplan hússins með 12 bílastæðum.

Góð og vel skipulögð fjölskylduíbúð. Öll uppgerð með 4 stórum svefnherbergjum, uppgerðu baðherbergi með innbyggðri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, glæsilegu og björtu alrými með samliggjandi stofu og fallega endurnýjuðu eldhúsi. Frábær staðstening í rólegu og fjölskylduvænu hverfi með alla helstu verslun og þjónustu í göngufæri ásamt skólum á öllum stigum, fjölbreytt íþrótta- og tómstundarstaf og falleg útivistarsvæði meðfram sjávarsíðunni

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur [email protected].

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Fasteignamiðlun

Fasteignamiðlun

Grandagarði 5, 101 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. ágú. 2020
53.100.000 kr.
56.500.000 kr.
121.4 m²
465.404 kr.
21. júl. 2020
53.100.000 kr.
52.000.000 kr.
121.4 m²
428.336 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignamiðlun

Fasteignamiðlun

Grandagarði 5, 101 Reykjavík