Lýsing
Miklaborg kynnir: Falleg og björt þriggja herbergja íbúð á frábærum stað í góðu fjölbýlishúsi með lyftu í Sjálandshverfi í Garðabæ. Eignin er á annarri hæð og telur 127 fm auk sér bílastæðis með hleðslustöð í lokaðri og upphitaðri bílageymslu í kjallara hússins. Skipulag telur forstofu, tvö svefnherbergi, rúmgott baðherbergi, þvottahús, rúmgóða stofu, borðstofu með útgengi á góðar svalir sem snúa í vestur og ná sjávarútsýni og eldhús sem opið er við stofu og borðstofu.
Allar nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða [email protected]
Nánari lýsing:
Anddyri með góðum eikarfataskápum sem ná upp í loft og hvítsprautuðum skúffum með stein á borði. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi og parket á gólfi.
Svefnherbergi: Svefnherbergi með skápum og parket á gólfi.
Eldhús: Eldhús er bjart með fallegri eikarinnréttingu, granítborðplötum, bakaraofni og örbylgjuofni í vinnuhæð, innfelldri uppþvottavél og ísskáp.
Borðstofa: Rúmgóð borðstofa er við eldhús og útgengi út á svalir með útsýni yfir ylströndina og út á sjó. Glæsilegur sprautulakkaður skenkur fylgir með.
Stofa: Stofan er björt með gólfsíðum gluggum og sjávarsýn. Hvít sérsmíðuð hilla og skenkur í stofu fylga með.
Baðherbergi: Var endurhannað á afar smekklegan hátt, flísalögð sturta, niðurfelld loft með innfelldri lýsingu, falleg spónlögð innrétting með speglaskápum fyrir ofan vask. Granítplata á borðum. Flísalagt í hólf og gólf og handklæðaofn.
Þvottahús: Í þvottahúsi er gólf flísalagt, með góðri innréttingu, vaski og opnanlegur gluggi.
Sérgeymsla 8,1 fm er í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu í sameign.
Stigagangur er mjög snyrtilegur með flísum og teppi.
Um er að ræða frábæra staðsetningu í Sjálandshverfi í Garðabæ þar sem mjög stutt er í leikskóla og grunnskóla. Þá eru fallegar göngu- og hjólastígaleiðir um hverfið meðfram sjónum og frábært útivistarsvæði í nágrenni.