Lýsing
FASTMOS kynnir: Fallegt og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð ásamt sérstæðum bílskúr við Þinghólsbraut 8 í Kópavogi. Eignin er skráð 190,0 m2 þar af íbúð 146,0 m2 og bílskúr 44,0 m2. Húsið skiptist í forstofu, hol, stofu og borðstofu, eldhús, gang, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu og þvottahús. Sérstæður bílskúr stendur við húsið. Húsið stendur á 753 m2 gróinni og fallegri lóð. Timburverönd til suðurs með skjólgirðingu. Rúmgott hellulagt bílaplan með snjóbræðslu (sem á eftir að tengja). Spennandi eign á vinsælum stað á Kársnesi í vesturbæ Kópavogs. Stutt í alla helstu þjónustu og vinsæl útivistarsvæði.
1994: Þak byggt yfir flatt þak. Húsið klætt að utan. 2006: Bílskúr klæddur og ný bílskúrshurð. 2017: Hiti settur í gólf, skipt um gólfefni á öllu húsinu, baðherbergi endurnýjuð, eldhús endurnýjað. Nýjar innréttingar á baði og í eldhúsi frá Ikea. Laus skápur í hjónaherbergi fylgir húsinu. Sturta, salerni, handlaugar og blöndunartæki koma frá Tengi. Rafmagn yfirfarið og tafla endurnýjuð. 2022: Jarðvegsskipti, hellulögn, hitabræðslurör lögð í plan en eru ótengd. Lagnir endurnýjaðar úti, skipt um skólp, ný kaldavatnslögn tengd og heitavatnslögn yfirfarin.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Hol er með flísum á gólfi. Úr holi er opið inn í stofu og borðstofu, eldhús og svefnherbergisgang.
Stofa og borðstofa er björt með flísum á gólfi. Í miðju rýminu er arinn og hlaðinn múrsteinsveggur.
Eldhús er með flísum á gólfi og hvítri innréttingu með góðu skápa- og skúffuplássi. Blástursofn og örbylgjuofn frá AEG, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu og ísskáp við hlið innréttingar.
Þvottahús með stórum handklæðaofni er inn af eldhúsi. Útgengt í bakgarð og að bílskúr.
Svefnherbergisgangur er með flísum á gólfi.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með flísum á gólfi.
Svefnherbergi 3 er með flísum á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Flísar eru á veggjum að hluta. Góð innrétting með handlaug, vegghengt salerni og "walk-in" sturta með glerskilrúmi. Handklæðaofn er gegnt sturtunni. Opnanlegur gluggi er í rýminu.
Forstofa er með flísum á gólfi. Inn af forstofu er gengið inn í gestasnyrtingu og svefnherbergi.
Svefnherbergi 4 er inn af forstofu með flísum á gólfi. Rýmið er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi.
Gestasnyrting er inn af forstofu með flísum á gólfi og veggjum að hluta, handlaug og vegghengdu salerni.
Bílskúr er skipt upp í bílskúr og geymslu með skilrúmi. Rýmið er ófrágengið að hluta.
Bílaplan er hellulagt og búið er að leggja fyrir snjóbræðslu sem á eftir að tengja.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 143.500.000,-
Verð kr. 164.900.000
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.