Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Vista
svg

1271

svg

993  Skoðendur

svg

Skráð  7. jún. 2025

parhús

Kumlamýri 13

225 Garðabær

187.700.000 kr.

919.197 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2521882

Fasteignamat

109.050.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
204,2 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

BÓKIÐ TÍMA Í SKOÐUN MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR 
Kumlamýri 13 og 15 verða sýnd fimmtudaginn 12. júní á fyrirframbókuðum sýningartímum eingöngu. Smelltu á linkinn hér fyrir ofan til að láta okkur vita hvaða tími hentar þér best. Við höfum svo samband fyrir sýningardag og ákveðum nánari tímasetningu.  

Gylfi Jens og Guðbjörg Helga hjá RE/MAX kynna Kumlamýri 13, 225 Garðabæ.
Fallegt og vel skipulagt 204,2 fm, 6 herbergja parhús á tveimur hæðum með 3 baðherbergjum og innbyggðum bílskúr í nýju spennandi hverfi á Álftanesi. 


   **Sjálfvirkt söluyfirlit sótt hér**

Húsið afhendist fullbúið á byggingarstigi B4, án gólfefna, fyrir utan baðherbergi, þvottahús og forstofu sem eru flísalögð.
Húsið er staðsteypt á tveimur hæðum, einangrað að utanverðu og síðan klætt með sléttum álplötum. Gluggar eru ál að utan og timbur að innan og því viðhaldslétt hús. Góð lofthæð og útsýni til sjávar. Tvær viðarverandir og suðursvalir.

Eignin skiptist með eftirfarandi hætti: Anddyri, þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi, sjónvarpsstofu, stofa/borðstofu, eldhús, bílskúr og þvottahús.
  • Aukin lofthæð
  • Gólfsíðir gluggar
  • Innbyggður bílskúr
  • 3 svefnherbergi / 3 Stofur / 3 Baðherbergi. 
  • Möguleiki er að breyta sjónvarpsherbergi í 4. svefnherbergið.
  • Gólfhiti
  • Rúmgott alrými
  • Vandaðar innréttingar
  • Lóð og hönnun hússins snýr vel gagnvart sól og birtu.
  • Gert er ráð fyrir heitum og köldum potti varðandi lagnir.

NÁNARI LÝSING:
Neðri hæð:
124,4 fm                                    
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Mjög gott skápa- og borðpláss, steinborðplötur, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, bakrarofn með blæstri, örbylgjuofn, undirlímdur vaskur, eyja með spanhelluborði og innfelldum gufugleypi. Sætispláss við eyju.
Baðherbergi I: Flísar á gólfi, innrétting með steinborðplötu og undirlímdri handlaug, upphengt salerni og sturta.
Þvottahús: Flísar á gólfi, innrétting með ræstivask og blöndunartæki í borði, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Borðstofa: Opin og björt, tengir saman eldhús og stofu. Útgengt út á viðarverönd. Einstakt útsýni yfir Bessastaði, sjóinn og fjallasýn.
Stofa: Opin og björt. Útgengt út á viðarverönd.
Sjónvarpsstofa: Opin inn í stofu. Möguleiki er að setja upp vegg hér og útbúa svefnherbergi/ lokað rými.
Bílskúr/geymsla: Innangengt úr íbúð, steypt gólf.
Garður: Lóð verður fullfrágengin samkvæmt samþykktum teikningum. Bílaplan hellulagt með snjóbræðslulögn. Á lóð eru 2 viðarverandir. Sorptunnuskýli forsteypt með hurðum. Lóð tyrfð með grasþökum.

Efri hæð:
79,8 fm, gólfflötur stærri en uppgefnir fermetrar vegna súðar.

Staðsteyptur stigi er á milli hæða með glerhandriði.
Rúmgott alrými fyrir miðju hússins með einstöku útsýni til norðurs.
Hjónasvíta: Rúmgott herbergi með útgengi út á góðar suðursvalir. Fataherbergi með góðu skápaplássi. Baðherbergi innaf herbergi.
Baðherbergi II - inn af hjónasvítu: Flísar á gólfi, innrétting með steinborðplötu og undirlímdri handlaug, upphengt salerni og sturta.
Herbergi I:  Rúmgott með fataskáp.
Herbergi II: Rúmgott með fataskáp.
Baðherbergi III: Flísar á gólfi, innrétting með steinborðplötu og undirlímdri handlaug, upphengt salerni, sturta, þakgluggi sem gefur fallega birtu í rýmið.

Frágangur á húsi:
Útveggir: Húsið er staðsteypt á tveimur hæðum, einangrað og klætt að utan með sléttri álkæðningu.
Gluggar: Álklæddir timburgluggar frá Rationel. Litur RAL 7035.
Þak: Full einangrað með steinull, öndunardúkur, legtur og báruál, litur RAL 3821.
Lóðin: Lóð verður fullfrágengin samkvæmt teikningum. Timburklæddar verandir, hellulögn með snjóbræðslulögn og lóð tyrfð með þökum. Forsteypt sorptunnuskýli með hurðum. Gert er ráð fyrir lögnum fyrir heitan og kaldan pott.
Hitakerfi: Húsið er upphitað með gólfhita skv. teikningum. Gólfhitakerfið er frágengið með hitastýrðum lokum.
Innveggir: Innveggir aðrir en steyptir eru hefðbundnir gipsplötuveggir. Veggir og loft innandyra eru spartlaðir og málaðir. Hluti lofta er með hljóðvistar loftadúk.
Innréttingar: Í eldhúsi og á baði ásamt fataskápum eru íslensk framleiðsla, Kappar ehf.
Gólfefni: Húsinu verður skilað fullbúnu án gólfefna. Gólf á baðherbergjum, anddyri og þvottahúsi eru þó flísalögð.
Eldhústæki: Eru frá Siemens; spanhelluborð, blástursofn, örbylgjuofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Háfur eru innbyggður í helluborði í eyju.
Frekari upplýsingar um frágang hússins má finna í skilalýsingu seljanda.

Byggingaraðili: Fimir ehf.
Arkitekt: Rúnar Gunnarsson, arkitekt FAÍ.
Raflagna- og lýsingarhönnun: LX teiknistofa ehf. - Helgi Eiríksson.
Burðarvirki og lagnir: Tæknivangur ehf. - Magnús Gylfason, verkfræðingur.

Umhverfið:
Kumlamýri er ný gata í nýju hverfi á Álftanesi. Hún liggur í suðurátt frá Suðurnesvegi og frá henni kvíslast fimm botnlangar. Við hvern botnalanga standa fjögur parhús með alls átta íbúðareiningum með sameiginlegu götu-og íverusvæði í miðju. 

Megin hugmynd deiliskipulagsins fyrir svæðið er að viðhalda, eftir því sem verða má, því búsetulandslagi sem einkennt hefur Álftanes. Því er leitast við að húsin myndi óreglulegar þyrpingar sem umlykja sameiginleg aðkomusvæði í stað þess að þau myndi hefðbundna götumynd. Nýja hverfið liggur þétt að grónu hverfi og er því stutt í alla helstu þjónustu, svo sem skóla, leikskóla, sundlaug, íþróttamiðstöð og golfvöll. Þá er fallegt útivistarsvæði allt um kring.

Kostnaður kaupanda vegna kaupa:
Kaupandi greiðir 0,3 % skipulagsgjald sem er innheimt þegar endanlegt brunabótamat liggur fyrir. 
Kaupandi greiðir 0,8% stimpilgjald af fasteignamati sem sýslumaður áætlar fyrir kaupsamning. 
Þjónustusamningur kaupanda við RE/MAX kr 69.900 m.vsk
Þinglýsingargjöld skjala kr. 2700 hvert skjal (algengt 3-5 skjöl)
(Stimpilgjald og skipulagsgjald reiknast af endanlegum matstölum HMS og Sýslumanns.)


Nánari upplýsingar og bókun í skoðun:
Gylfi Jens Gylfason, löggiltur fasteignasali,
í netfanginu [email protected] og síma 822-5124.
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir, löggiltur fasteignasali,
í netfangingu [email protected] og síma 897-7712

img
Gylfi Jens Gylfason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
RE/MAX
Skeifunni 17, 108 Reykjavík
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
img

Gylfi Jens Gylfason

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone

Gylfi Jens Gylfason

Skeifunni 17, 108 Reykjavík