Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Vista
svg

223

svg

165  Skoðendur

svg

Skráð  10. jún. 2025

parhús

Sóltún 20

800 Selfoss

79.900.000 kr.

500.940 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2253782

Fasteignamat

78.350.000 kr.

Brunabótamat

70.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2001
svg
159,5 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
Opið hús: 15. júní 2025 kl. 15:00 til 15:30

Opið hús: Sóltún 20, 800 Selfoss. Eignin verður sýnd sunnudaginn 15. júní 2025 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.

Lýsing

Elín Viðarsdóttir lgfs, [email protected], gsm. 695-8905 og Valhöll fasteignasala kynna í einkasölu Sóltún 20, 800 Selfossi.
Mjög snyrtilegt og vel viðhaldið 4ra herbergja parhús á einni hæð auk innangengs bílskúrs, innarlega í botnlanga á vinsælum stað og í göngufæri við nýja miðbæ Selfoss. 

Í bílskúr er möguleiki á að útbúa auka íbúðarrými þ.s. þar eru nú þegar til staðar sér inngangar, salerni gluggar ofl. !
Fasteignamat
2025 er 78.350.000.- en verður 86.300.000 f. árið 2026

- Eignin er skráð skv. HMS 159,5 fm. Íbúð 117,4 fm og bílskúr 42,1 fm.
- Parhús á einni hæð - bygg.ár 2001 - Einn eigandi
- Húsið er timburhús klætt með stení.
- Gott skipulag - 3 svefnherbergi (möguleiki á íbúðareiningu í bílskúr)

- Gestasalerni og baðherbergi (2 salerni)
- Lokuð suður verönd með skjólveggjum framan við húsið. Grasflöt í bakgarði og þvottasnúrur.
- Malbikuð innkeyrsla og hellulögð stétt. Hellulögð verönd, stéttar og plan eru með snjóbræðslu.
- Afhending við kaupsamning 


Húsið skiptist í: Forstofu, hol, eldhús, stofu, gang, baðherbergi, 3 svefnherbergi og þvottahús.  Bílskúr; gestasalerni og geymsluloft.
Nánari lýsing;

Forstofa: Flísalögð með gólfhita. Fataskápur.
Hol: Korklagt. Opnast inn í eldhús, stofu og svefnherbergisgang.
Eldhús: Rúmgott með korkflísum og gólfhita. U-laga eikarinnréttingu og rúmgóðum borðkrók. Helluborð, ofn í hæð og vifta. Ísskápur og uppþvottavél geta fylgt.
Stofa: Rúmgóð og björt, með gluggum á 2 vegu. Korklögð. Útgengi er þaðan á hellulagða lokaða verönd með skjólgirðinu og snjóbræðslu. 
Svefnherbergisgangur:  Af holi, korklagður.  Af honum eru; baðherbergið, svefnherbergin og þvottahúsið. Öll herbergin snúa inn í garðinn.
Svefnherbergi I: Korklagt mjög rúmgott með skáp og gluggum á 2 vegu.
Svefnherbergi II: Korklagt, rúmgott með skáp.
Svefnherbergi III: Korklagt, rúmgott með skápum.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Rúmgott með gólfhita. Upphengt salerni, sturtuklefi, eikar vaskinnrétting og baðkar. 
Þvottahús: Tengir svefnherbergisgang og bílskúrinn. Flísalagt með Vaskborði og hillum. 
Bílskúr: Er innangengur og skráður 42,1 fm. Flísalagður með gólfhita og rafdrifinni innkeyrsluhurð og inngönguhurð að framanverðu og úr bakgarði. Niðurtekið geymsluloft með þægilegum stiga. Heitt og kalt vatn. Gluggi snýr út í garð. Góðir möguleikar eru á að útbúa íbúðarrými þar sem salerni, vötn, gluggar og aðgengi eru til staðar.
Gestasalerni: Er í bílskúrnum. Flísalagt með gólfhita, salerni og vask.
Geymsla:  Mjög rúmgott niðurtekið geymsluloft er í bílskúrnum með góðu aðgengi
Lóðin: Er skráð 931,2 fm. og er eignarlóð eigenda parhússins Sóltún 20 og 22.
Af bílaplani og úr stofu er aðgengi að lokaðri suður verönd með snjóbræðslukerfi og skjólveggjum framan við húsið. Grasflöt er til hliðar við húsið og í bakgarði og þar eru þvottasnúrur.
Planið er malbikað og hellulögð stétt bæði með snjóbræðslukerfi.

Samantekt: Hér er um að ræða einstaklega rúmgott, vel viðhaldið og vel skipulagt parhús á einni hæð innarlega í botnlanga á besta stað í grónu hverfi á Selfossi.Vel umgengin og snyrtileg eign í alla staði á fallegum stað á Selfossi þar sem stutt er í náttúrufegurð, gönguleiðir og örstutt í leikskóla, verslun sem og þjónustu nýja miðbæjarins.

Allar nánari upplýsingar veitir  Elín Viðarsdóttir lgfs, [email protected], gsm. 695-8905

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. VALHÖLL fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati.
Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone