Lýsing
Falleg og vel staðsetta íbúð á fyrstu hæð í lyftuhúsi með stæði í lokaðri bílageymslu við Álfkonuhvarf, Kópavogi.
Birt stærð íbúðarinnar er 88,2 fm. og geymslu 8,5 fm. Heildarstærð er 96,7 fm.
Íbúðin hefur verið talsvert endurnýjuð (sjá framkvæmdalista neðar í lýsingu.)
Nánari lýsing:
Eignin telur: Forstofu, þvottahús, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, svalir auk geymslu í kjallara og bílastæðis í lokaðri bílageymslu.
Nánari lýsing.
Flísalögð forstofa með skáp.
Eldhús með hvítlakkaðri innréttingu og eru flísar milli skápa. Eldhúsið er opið inn í stofuna.
Rúmgóð stofa þar sem útgengt er á svalir sem snúa í suður. Parket á gólfi.
Herbergi: rúmgott herbergi með fataskáp. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum, parket á gólfi.
Baðherbergið er allt flísalagt með baðkari með sturtuaðstöðu. Hvítlökkuð innrétting.
Þvottahús er innan íbúðar, flísar á gólfi. Nýlegar hvítar innréttingar frá 2020.
Góð geymsla fylgir í kjallara. 8.5 fm að stærð.
Stæði í snyrtilegu lokuðu bílastæðahúsi. Raflögn fyrir rafhleiðslustöð og geymsluskápur.
Bókið skoðun hjá fasteignasala. Ekki opið hús - aðeins einkasýningar.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar lögg.fasteignasali í síma 897-5930 eða [email protected]
Framkvæmdalisti núverandi eiganda.
Innréttingar, hurðir og skápar hvít-lakkað, fyrir utan þvottahús.
Flísar á votrýmum lakkaðar með epoxy málningu.
Parket pússað upp og hvíttað – 2020
Eldhús
Skipt um borðplötu, vask og blöndunartæki - 2020
Veggflísar málaðar með epoxy málningu - 2020
Uppþvottavél fylgir
Baðherbergi
Ný borðplata og blöndunartæki í vask 2020
Speglaskápur settur upp 2020
Handklæðaofn (á bak við hurð)
Þvottahús
Ný innrétting sett upp 2020
Svalir
Flísalagðar
Sameign og bílageymsla
Nýr dyrasími í allar íbúðir – maí 2025
Nýjar rólur og undirlag – 2023
Settir voru upp geymsluskápar í hvert bílastæði 2023
Ytra tréverk málað 2023 (gluggar og hurðir)
Nýjir blásarar keyptir og settir upp í bílageymslu – maí 2025
Lagt fyrir hleðslustöð í bílastæði
Myndavélar í bílageymslu
Snjóbræðslukerfi í bílaplani og stéttum við innganga
ATH - Hunda- og kattahald bannað í húsinu (kosið um það sérstaklega).
Bókið skoðun hjá fasteignasala. Ekki opið hús - aðeins einkasýningar.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar lögg.fasteignasali í síma 897-5930 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.