Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Guðmundsson
Berglind Jónasardóttir
Greta Huld Mellado
Vista
svg

1449

svg

1283  Skoðendur

svg

Skráð  30. júl. 2026

fjölbýlishús

Austurbrú 18

600 Akureyri

157.300.000 kr.

838.039 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2531377

Fasteignamat

84.000.000 kr.

Brunabótamat

16.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
187,7 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955

Einstakar útsýnisíbúðir í hjarta Akureyrar. Staðsetningin býður íbúum við Austurbrú uppá einstök gæði. Íbúðirnar eru í nálægð við pollinn, miðbæinn og stóran hluta menningarstarfsemi Akureyrar.

***Bókaðu einkaskoðun í síma 464 9955 eða á [email protected]***


Íbúð 410 --Laus til afhendingar við kaupsamning--

Fjögurra herbergja íbúð á tveimur hæðum, með tveimur baðherbergjum og þrennum svölum á annarri hæð í nýbyggingu ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Austurbrú 18.
Íbúðin er samtals 187,7 fm., þar af er geymsla 13,6 fm.


Íbúðin:
Skiptist í forstofu með útgengi út á svalir til vesturs.
Baðherbergi með útgengi út á svalir til suðausturs frá baðherbergi. 
Hjónaherbergi með útgengi út á svalir til suðausturs. 
Opið eldhús, þar sem gert er ráð fyrir eyju.  
Stofa/borðstofa, er björt. Útgengt út á stórar svalir frá stofu, sömu svalir og útgengi er út hjónaherbergi og baðherbergi. Með glæsilegu útsýni yfir pollinn. 

Efri hæð:
Tvö svefnherbergi, útgengi út á litlar svalir frá herberginu til austurs. 
Baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir þvottaaðstöðu í sama rými.
Geymsla í sameign.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni 

Augýst verð á íbúðinni miðast við að íbúðin sé ófrágengin.  
Verð miðað við fullbúna íbúð er kr. 190.000.000. - 

Sameign er með glæsilegra móti.
Komið er inn í rúmgott anddyri.  Stórar ljósakrónur og lýsing frá Lumex gefa fallega birtu.
Hljóðplötur í lofti, þannig að hlóðvist verður með besta móti.
Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar.  Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.
Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu. 

Við Austurbrú 10-18 verða samtals 64 íbúðir og eru þær allar með verönd eða svalir. Gluggarnir nema við gólf fyrir óhefta dagsbirtu og útsýni. Flestum íbúðunum fylgir einkastæði í bílakjallara og þar eru einnig hjólageymsla og geymslur. Lyftur eru í öllum stigahúsum og gott aðgengi fyrir hjólastóla og barnavagna. Í kjallara eru geymslur íbúðanna auk 62 bílastæða í bílageymslu. Ísorka ehf. og Austurbrú 10-18 húsfélag hafa gert með sér samning með rekstur hleðslukerfis fyrir rafbíla á sameiginlegu bílastæði með hugbúnað Ísorku ehf. 
Byggingarnar sem rísa Hafnarstrætis megin á reitnum munu hýsa glæsilegt hótel búið veitingastað og kokteilbar. Það verður rekið af Hilton og verður innangengt á milli húsanna. 

Allar frekari upplýsingar, verðlista og tegundir íbúða má sjá með því að smella hér

Framkvæmdaraðili: Pollurinn ehf.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut). Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone
Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone