Upplýsingar
Byggt 1955
157,9 m²
4 herb.
Bílskúr
Sérinngangur
Lýsing
Efri hæð Austurvegar 1 á Þórshöfn. Um er að ræða 130,0 m² íbúð, byggð 1955 ásamt 27,9 m² áföstum bílskúr, byggður 1965, samtals því 157,9 m². Komið inn í lítið anddyri þaðan sem stigið er inn í aflangt hol, þar á hægri hönd eru tvær samliggjandi stofur, á vinstri hönd er eldhús með litlu búri og inn holið eru þrjú stór herbergi og salerni í holenda. Sameiginlegt þvottahús á neðri hæð hússins. Kominn er tími á ýmist viðhald utanhúss, m.a þarf að skipta um glugga og mála þak. Innréttingar innanhúss eru allar upprunalegar.