Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Vista
svg

2177

svg

1739  Skoðendur

svg

Skráð  21. júl. 2025

fjölbýlishús

Breiðakur 8

210 Garðabær

115.900.000 kr.

916.206 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2502352

Fasteignamat

95.550.000 kr.

Brunabótamat

86.010.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
126,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Magnús Már Lúðvíksson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: 

Vel skipulögð, björt og rúmgóð 126,5 fm. þriggja herbergja íbúð á annarri hæð (efsta hæð), þar af er sér geymsla íbúðarinnar 16,4 fm. Um er að ræða nýlegt lyftu fjölbýli (byggt árið 2018) við Breiðakur 8, 210 Garðabæ. Sér stæði í bílageymslu fylgir með íbúðinni.

Smekklegt og flott fjölbýli með einungis átta íbúðum í húsinu.

Sér þvottahús innan íbúðar, stór stofa, skápar upp í loft og stórar svalir sem snúa til vesturs með mikið og flott útsýni til sjávar og víðar. Innréttingar í eldhúsi, baðherbergi og í svefnherbergjum eru frá HTH og eldhústæki frá AEG. 

Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3D

Bókið skoðun hjá Magga í síma 699-2010 eða með tölvupósti á netfangið [email protected]


Nánari lýsing: 
Forstofa er með flísum á gólfi og hvítum fataskápum. Hægt er að loka forstofu frá alrými íbúðarinnar.
Alrýmið samanstendur af stofu og eldhúsi, harðparket á gólfi. Stofan er rúmgóð, björt og rúmar vel bæði setustofu og borðstofu. Útgengi er þaðan út á stórar svalir með mikið og flott útsýni til sjávar og víðar. 
Eldhúsinnrétting er með bæði efri og neðri skápa, gott skápa- og vinnupláss. Lýsing undir efri skápum, eyja sem hægt er að setja við. Innbyggð uppþvottavél og innbyggður kælir með frysti. Bökunarofn er í vinnuhæð. Gluggi í eldhúsi gefur góða birtu inn. 
Hjónaherbergið er mjög rúmgott með glugga í tvær áttir og hvíta fataskápa. Harðparket á gólfi. 
Barnaherbergið er einnig mjög rúmgott og með hvítum fataskáp, harðparket á gólfi. 
Baðherbergið er með bæði gólf og veggi flísalagða. Sturtu með innbyggðum blöndunartækjum og gleriþil. Hvít baðinnrétting með handlaug og skúffum þar fyrir neðan. Spegill þar fyrir ofan með lýsingu í. Upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun.
Þvottaherbergi er með flísum á gólfi og innréttingu með tengi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Auk þess er skápur með skolvask og efri skápum þar fyrir ofan. Þá er einnig innrétting þar á móti, hvít. Mjög gott skápa og vinnupláss er í þvottahúsinu. 
Sérmerkt stæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu fylgir íbúðinni. 
þá fylgir einnig sér 16,4 fm. geymsla, sem staðsett er inn af bílakjallara.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla í sameign hússins. 

Góð aðkoma er að húsinu. Vel hirt lóð, tyrfðar flatir, hellulagðar stéttar og hellulögð sameiginleg bílastæði.

Rúmgóð, björt og flott eign í þessu vinsæla hverfi, Akralandi. Stutt er þaðan í alla verslun og þjónustu, leikskóla, grunnskóla og fjölbrautaskóla. Íþróttasvæði og sundlaug er í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar veita:
Magnús Már Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali, í síma 699-2010 / [email protected]
Gunnar Sverrir, löggiltur fasteignasali, í síma 862-2001 / [email protected]

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar -  Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-

RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. feb. 2020
58.500.000 kr.
62.900.000 kr.
126.5 m²
497.233 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone