Opið hús: fimmtudaginn 11. september milli kl. 12:15 og kl. 12:45. - Hringbraut 107, 101 Reykjavík.
Lýsing
Íbúðin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Þá fylgir íbúðinni sérgeymsla í kjallara ásamt hlutdeild í sameiginlegu þvottahúsi og hjóla- og vagnageymslu. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 81,5 fermetrar.
Nánari lýsing:
Anddyri/hol: Með fataskáp. Tengir saman öll rými íbúðarinnar.
Stofa: Rúmgóð og björt. Parket á gólfi.
Eldhús: Hvítt innrétt með góðu skápaplássi, ofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með plássi fyrir fataskápa. Útgengt á skjólgóðar suðursvalir.
Barnaherbergi: Bjart herbergi með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Flísalögð sturta með sturtugleri, vegghengt salerni, innrétting með skúffum og efri skápar.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara.
Húsið var endursteinað og settar nýjar svalir árið 2006, sama ár voru hellulagðar gangstéttir í bakgarði og sett upp lýsing við bakdyr allra stigaganga.
Annað:
Um er að ræða vel staðsetta íbúð í hjarta Vesturbæjarins þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Vesturbæjarskóli er hinum megin við götuna, íþróttasvæði KR í næsta nágrenni, auk þess sem gönguleiðir við sjóinn og miðbærinn eru í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
[email protected] / sími 450-0000
Netverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður