Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 207,1 m2 efri sérhæð í tvíbýlishúsi ásamt stórum bílskúr við Bugðutanga 1 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 207,1 m2, þar af íbúð á hæð 144,3 m2 og bílskúr 62,8 m2. Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, gang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús og bílskúr. Bílskúrinn er rúmgóður með gluggum á þremur hliðum. salernislagnir eru til staðar í bílskúr sem bíður upp á möguleika á að gera auka íbúð.
Frábær staðsetning á rólegum stað í vinsælu hverfi í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, verslun og alla helstu þjónustu.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi.
Gestasalaerni er inn af forstofu með flísum á gólfi, salerni og handlaug. Opnanlegur gluggi er á gestasalerni.
Stofa er með parketi á gólfi. Fallegut arinn er í stofu. Útgengt er á timburverönd og garð til suðurs úr stofu.
Borðstofa er inn af stofu með parketi á gólfi.
Eldhús er með parketi á gólfi, innréttingu með góðu skápaplássi, bakaraofni og helluborði. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. Eldhúskrókur er við hlið eldhúss.
Þvottahús er inn af eldhúsi.
Efri pallur:
Gangur er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskápum. Útgengt er úr hjónaherbergi á svalir til norðvesturs.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi og skrifstofa og er með parketi á gólfi og fataskáp. Herbergið er opið við gang á palli. Á upprunalegri teikningu eru tvö svefnherbergi í rýminu.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, handlaug, salerni og sturtuklefa með glerskilrúmi. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Bílskúr er rúmgóður með steyptu, máluðu gólfi og rafdrifnum bílskúrshurðaopnara. Gluggar á þremur hliðum, salernislagnir og skolvaskur eru í rýminu.
Tvö bílastæði fyrir framan bílskúr á upphituðu hellulögðu bílaplani fylgja eigninni. Einnig er hiti í hellulagðri gönguleið að húsinu.
Verð kr. 139.000.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.