Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Vista
svg

35

svg

31  Skoðendur

svg

Skráð  10. sep. 2025

fjölbýlishús

Maríugata 32

210 Garðabær

87.900.000 kr.

968.062 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2511528

Fasteignamat

78.550.000 kr.

Brunabótamat

58.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2021
svg
90,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 11. september 2025 kl. 18:15 til 18:45

Opið hús: Maríugata 32, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 04 02. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 11. september 2025 milli kl. 18:15 og kl. 18:45.

Lýsing

Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Virkilega fallega, vandaða, bjarta og vel skipulagða 90,8 fermetra 3ja herbergja íbúð á 4. hæð (efstu) með allt að 3,8 metra lofthæð, stórum gluggum, fallegu útsýni og suðursvölum í vönduðu fjölbýlishúsi með lyftu á góðum, rólegum og barnvænum stað í Urriðaholtinu í Garðabæ.  Frá stofu, svölum og hjónaherbergi nýtur mjög fallegs útsýnis til suðurs að Reykjanesi og út á sjóinn og frá barnaherbergi er fallegt útsýni að Esjunni og yfir Heiðmörkina.

Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið [email protected] eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið [email protected]
 


Lýsing eignar:
Forstofa, flísalögð og rúmgóð með fataskápum.
Hol/gangur, parketlagður.
Eldhús, opið við stofu og með glugga. Virkilega fallegar innréttingar úr svartbæsaðri eik með innbyggðri uppþvottavél og ísskáp með frysti og kvartsteini á borði. Undirlímdur svartur vaskur með svörtum blöndunartækjum.  Eyja með kvartsteini á borði og kanti, spanhelluborði, hangandi háfi, áfastri borðaðstöðu og góðu skápaplássi. Vönduð tæki frá AEG eru í eldhúsi.
Stofa, mjög björt og rúmgóð, parketlögð. Mjög mikil lofthæð er í stofu, stórir gluggar til suðurs og virkilega fallegt útsýni að Reykjanesi, út á sjóinn og víðar. Úr stofu er útgengi á 10,9 fermetra skjólsælar suðursvalir sem leyfi er komið fyrir að setja svalalokun á.
Barnaherbergi, parketlagt og með innbyggðum fataskápum. Frá barnaherbergi er mjög fallegt útsýni að Esjunni og yfir Heiðmörkina.
Baðherbergi, flísalagt gólf og hluti veggja, innrétting, vegghengt wc, handklæðaofn, flísalögð sturta með sturtugleri og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi, mjög rúmgott, parketlagt og með miklum innbyggðum fataskápum í vegg.  Frá hjónaherbergi er fallegt útsýni að Reykjanesinu og út á sjóinn.

Á jarðhæð hússins er sérgeymsla, 5,0 fermetrar að stærð.
Á lóð er sameiginleg hjólageymsla.


Húsið að utan er klætt og því viðhaldslítið og sameign hússins er mjög snyrtileg og vel umgengin.

Staðsetning eignarinnar er mjög góð á rólegum og barnvænum stað í Urriðaholtinu í Garðabæ.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: 
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða [email protected]
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. jún. 2023
63.350.000 kr.
71.000.000 kr.
90.8 m²
781.938 kr.
4. feb. 2021
4.550.000 kr.
52.900.000 kr.
90.8 m²
582.599 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone