Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Tryggvi Guðmundsson
Guðmundur Óli Tryggvason
Vista
einbýlishús

Völusteinsstræti 20

415 Bolungarvík

65.000.000 kr.

269.822 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2121739

Fasteignamat

53.500.000 kr.

Brunabótamat

105.750.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1974
svg
240,9 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is - kynnir til sölu - Völusteinsstræti 20 Bolungarvík. Stórt og fallegt einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr og stórum garði. Á efri hæð er aðalinngangur, forstofa, gangur, stofa og borðstofa, eldhús, fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Á neðri hæð er þvottahús, salerni og geymsl. Bílskúr er skráður 30,7 m² að stærð, inn af bílskúr er um það bil 60 m² óinnréttað rými sem nýtist í dag sem geymsla og gefur marga möguleika á nýtingu.

Nánari lýsing:
Aðalinngangur á efri hæð, forstofa er flísalögð, hiti í gólfi. Gangur með parketi. 
Stór opin stofa og borðstofa með parketi á gólfi, útgengt út á stóran sólpall úr borðstofu.
Eldhús var endurnýjað í kringum 2010, falleg innrétting með eikaráferð, flísar gólfi, háfur, helluborð og veggofn.
Gengið upp nokkur þrep upp í svefnálmu, parket á gólfi og hiti í öllum gólfum þar. 
Fjögur svefnherbergi, hjónaherbergi með stærri fataskáp og þrjú minni herbergi, parket og hiti í gólfum.
Baðherbergi uppgert, flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting og góð "walk-in" sturta. 

Úr gangi við forstofu er flísalagður stigi niður á neðri hæð, þar sem er 29 m² rými þar sem er flísalagt þvottahús og salerni, geymsla fyrir innan þvottahús.
Sérútgangur úr þvottahúsi út í garð.

Bílskúr er 30,9 m² samkvæmt fasteignaskrá, heitt og kalt vatn, steypt gólf og nýlegt bílskúrshurð með rafmagnsopnun. 
Innangengt úr bílskúr inn í 60 m² óinnréttað rými á neðri hæð sem er nú nýtt sem geymsla aðallega. Möguleiki á að innrétta rýmið og nýta sem hluti af íveruplássi.
Stór garður og hellulagt bílastæði.

Framkvæmdasaga seljenda:
Loftaklæðning í stofu endurnýjuð 2017.
Bílskúrshurð og inngönguhurð endurnýjuð í bílskúr, hluti glers og opnanlegra faga í gluggum 2018, aðallega norðurgafl. 
Svefnálma og bað 2019, gólfefni, hiti í gólfi, innihurðir og bað endurnýjað. Rafmagnsdósir og rofar endurnýjaðir þar á sama tíma.


 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Fasteignasala Vestfjarða

Fasteignasala Vestfjarða

Hafnarstræti 19, 400 Ísafirði
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. apr. 2015
16.650.000 kr.
18.500.000 kr.
240.9 m²
76.795 kr.
9. júl. 2010
10.950.000 kr.
13.648.000 kr.
240.9 m²
56.654 kr.
11. jún. 2007
8.470.000 kr.
9.500.000 kr.
240.9 m²
39.435 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Vestfjarða

Fasteignasala Vestfjarða

Hafnarstræti 19, 400 Ísafirði
phone