Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórir Helgi Sigvaldason
Katla Hanna Steed
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Vista
svg

112

svg

69  Skoðendur

svg

Skráð  1. jan. 2026

fjölbýlishús

Grensásvegur 1A íb 206

108 Reykjavík

Tilboð

Fasteignanúmer

F2522160

Fasteignamat

129.900.000 kr.

Brunabótamat

184.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2025
svg
365 m²
svg
0 herb.
Opið hús: 11. febrúar 2026 kl. 12:00 til 12:30

Opið hús: Grensásvegur 1. íb 206, 108 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 02 06. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 11. febrúar 2026 milli kl. 12:00 og kl. 12:30.

Lýsing

Háborg fasteignasala kynnir til leigu glæsilegt og nýtt atvinnuhúsnæði á 2. hæð við Grensásveg 1, 108 Reykjavík. Um er að ræða 455,2 fm skrifstofurými að meðtöldum sameignarfermetrum í nýjum skrifstofuturn í norðurenda lóðarinnar á móti Glæsibæ. Byggingin, með bogadreginni glerframhlið (glerboganum), er áberandi kennileiti í borgarlandslaginu. Skrifstofuturninn býður upp á fjölbreytta og glæsilega aðstöðu fyrir fyrirtæki af öllum stærðum miðsvæðis í Reykjavík. Boðið er upp fyrir áhugasama að fara í hönnunar vinnu á rýminu með þínum þörfum, að undangengni þarfagreiningu og viljayfirlýsingu. Leiguverðið á hverri hæð miðast við hvernig skrifstofunum verður skilað.  
Lóðar samgöngutengingar eru í allar áttir fyrir keyrandi, hjólandi og fyrir stækkandi hóp þeirra sem velur almenningssamgöngur. Fyrsti áfangi Borgarlínu liggur fram hjá húsnæðinu frá Ártúni niður í miðbæ Reykjavíkur og er ein af fyrirhuguðum stoppistöðvum línunnar um 200 metra frá aðalinngangi á jarðhæð sem snýr út að Suðurlandsbraut.

Stórbrotið útsýni. 
Af hæðinni er einstakt útsýni yfir höfuðborgarsvæðið: til vesturs að Snæfellsjökli, til norðurs að Esjunni og til austurs að Hellisheiði og Bláfjöllum. Um er að ræða eitt það fallegasta útsýni sem býðst í skrifstofuhúsnæði í borginni.

Fyrirkomulag og aðstaða.
Leigusali býður upp á sveigjanlega útfærslu og getur sniðið rýmið að þörfum leigutaka. Leiguverðið miðast við hvernig eignin afhendist leigutaka. Gert er ráð fyrir að leigusamningurinn getur orðið til 10. ára. Samkvæmt grunnteikningu er gert ráð fyrir:
  • Fjórum opnum vinnurýmum með allt að 24 starfsstöðvum
  • Móttöku og biðstofu
  • Tveimur fundarherbergjum
  • Tveimur snyrtingum og ræstikompu
  • Eldhúsi/mötuneyti (hægt að breyta í skrifstofurými ef þörf krefur)
  • 23 fm suðursvölum sem snúa að inngarði
  • Tvær hraðvirkar lyftur.
Glerboginn – glæsileg skrifstofubygging
Turninn er sjö hæðir. Á jarðhæð er stór aðalinngangur frá Suðurlandsbraut og gert er ráð fyrir 2. veitinga-, verslunar- eða þjónusturýmum. Á 2.–7. hæð eru skrifstofurými. Öll rýmin eru björt og rúmgóð með framúrskarandi loft- og birtuskilyrðum. Gert er ráð fyrir vönduðu efnisvali og frágangi í gólfefnum, lýsingu og innréttingum.

Bílageymsla og vistvænar lausnir
Undir húsinu er þriggja hæða bílakjallari. Áætlað er að allt að 10 bílastæði fylgi hverri skrifstofuhæð, en fjöldi þeirra er umsemjanlegur. Þar er einnig aðstaða til rafhleðslu og stór hjólageymsla. Unnið er að því að veita leigjendum aðgang að deilibílum í samvinnu við rekstraraðila.

Frábær staðsetning og framtíðaruppbygging
Húsnæðið er á einum besta stað borgarinnar með öfluga þjónustu og fjölbreytt fyrirtæki í næsta nágrenni. Fyrsti áfangi Borgarlínunnar mun liggja frá Hlemmi að Grensásvegi 1 og styrkir það enn frekar stöðu hússins sem miðpunkt í hverfinu.

Pantið skoðun – við sýnum með stuttum fyrirvara.
Við erum til húsa á 6. hæð í sama húsi og getum því brugðist hratt við.

Nánari upplýsingar veita:
Birkir
– Sími: 867-3388 | Netfang: [email protected]
Jórunn, löggiltur fasteignasali – Sími: 845-8958 | Netfang: [email protected]
 

img
Jórunn Skúladóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Háborg fasteignasala
Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone
img

Jórunn Skúladóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. des. 2024
47.400.000 kr.
488.160.000 kr.
20206 m²
24.159 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone

Jórunn Skúladóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík