Lýsing
Hlekkur á ítarlegar upplýsingar er hér.
Bílakjallari undir húsinu er stór og rúmgóður og verða tæplega þúsund stæði og gott aðgengi að rafhleðslustöðvum. Íbúar hússins hafa aðgang að stæði í bílakjallara gegn hóflegu gjaldi.
115 íbúðir í íbúðakjarnanum á 3 til 6 hæðum og afhendast í 4 áföngum. Húsið er vel hannað þegar kemur að birtustigi og hverfist um skjólgóðan inngarð. Frábær staðsetning í nýju hverfi á Kirkjusandi, þar sem líflegur Laugardalurinn er í göngufæri með allt það sem hann hefur upp á að bjóða og örstutt í miðbæ Reykjavíkur.
NÁNARI LÝSING:
Íbúð 313 er frábær 3ja-4ra herbergja horníbúð á næst efstu hæð með yfirbyggðar vestur svalir. Stendur á norð-vestur horni hússins og er því með fleiri glugga í alrými sem hleypi mikilli náttúrelgri birtu inn í rýmið.
Forstofa er með sérsmíðuðum fataskáp sem nær upp í loft.
Stofa/alrými er björt og opin með útgengi úr stofu á vestur svalir.
Eldhús með fallegri sérsmíðaðri innréttingu úr ljósri létthvíttaðri eik með quartz Technistone plötu frá Rein í lit Mystery white á borði, eldhúseyja með sömu plötum á borði og meðfram hliðum eyjunar. Eldhús skilast með vönduðum tækjum frá Siemens, Span helluborði með innbyggðum gufugleypi og bakaraofn með kjöthitamæli og sjálfhreinsibúnaði.
Sjónvarpshol inn af alrými sem býður upp á þann möguleika að bæta við þriðja svefnherberginu.
Svefnherbergi eru tvö og annað með sérsmíðuðum fataskápum sem ná upp í loft.
Baðherbergið er með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Egger. Borðplata með sömu quartz plötum og í eldhúsi. Sturta með Unidrain gólfrennupakka. Flísar á böðum eru frá Ítalíu, Píemme, seria Journey, litur Otta, stærð 60*120 cm á gólf og veggi, einn veggur með skrautflísum stærð 30*60 cm.
Geymsla er 11,2 fm
(Myndir á vefnum eru dæmi um útlit eignarinnar en endurspegla ekki alltaf nákvæmlega auglýsta eign)
Bókið skoðun eða fáið nánari upplýsingar hjá:
Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. í síma 767-0777 eða á netfanginu [email protected]
Auðun Ólafsson lgf. í síma 894-1976 eða á netfanginu [email protected]
Guðbjörg Sveinbjörnsdóttir lgf. í síma 899-5949 eða á netfanginu [email protected]
Hallgrímur Hólmsteinsson lgf. í síma 896-6020 eða á netfanginu [email protected]
Kristín María Stefánsdóttir lgf. í síma 837-1177 eða á netfanginu [email protected]
Kristján Baldursson lgf. í síma 867-3040 eða á netfanginu [email protected]
Sólveig Regína Biard lgf. í síma 869-4879 eða á netfanginu [email protected]
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.