Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1965
37,3 m²
0 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Sérinngangur
Lýsing
LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900
Snorrastaðir Gil, Bláskógabyggð – Í einkasöluNotalegt sumarhús í fallegu umhverfi við Bláskógabyggð.
Um er að ræða 37,3 fm sumarhús byggt árið 1965. Húsið er úr timbri, klætt að utan með standandi timburklæðningu og bárujárn á þaki. Húsið stendur á símastaurum. Byggt hefur verið við húsið en sá hluti er ekki inn í skráðri fermetratölu.
Eignin stendur á 5.000 fm vel gróinni lóð þar sem lítil á rennur meðfram landinu og skapar einstaklega fallegt og friðsælt andrúmsloft.
Smelltu hér til að sjá staðsetningu
Skipulag hússins:
Forstofa: Með furugólffjölum.
Tvö svefnherbergi: Bæði með furugólffjölum.
Eldhús: Hvít snyrtileg innrétting, kamína og furugólffjalir.
Stofa: Björt og opin stofa með furugólffjölum og útgengi á verönd. Á veröndinni er nýr Soft Tub pottur.
Baðherbergi: Innrétting með vask, salerni og sturtuklefa.
Staðsetning:
Sumarhúsið er í einstaklega fallegu umhverfi þar sem náttúran leikur aðalhlutverkið. Örstutt er á Laugarvatn og stutt akstursfjarlægð er á helstu náttúruperlur á Gullna hringnum.
Nánari upplýsingar veita
Sigurður Sigurðsson, löggiltur fasteignasali í síma 690-6166, [email protected]
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali Skjalavinnsla í síma 845-9900, [email protected]
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. jún. 2012
7.540.000 kr.
9.500.000 kr.
37.3 m²
254.692 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026