Lýsing
Völuteigur 6, 270 Mosfellsbær – 260 fm vönduð atvinnu- og íbúðareign með miklum möguleikum.
Rúmgott og vel skipulagt húsnæði á tveimur hæðum, staðsett á góðum stað í Mosfellsbæ. Eignin hentar sérstaklega vel sem blandað atvinnu- og íbúðarhúsnæði, þar sem neðri hæð er hugsuð sem atvinnuhúsnæði og efri hæð nýtist sem íbúð, skrifstofur eða til blandaðrar nýtingar.
Með litlum breytingum er mögulegt að skipta eigninni upp í tvær sjálfstæðar einingar. Eignin er í útleigu og getur leigusamningur fylgt með.
Hér er um að ræða fjölhæfa eign með mikla möguleika til rekstrar, búsetu eða fjárfestingar.
*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*
Neðri hæð – 135 fm (atvinnuhúsnæði)
- Opið og rúmgott vinnu- og rekstrarrými
- Rými sem hentar vel fyrir móttöku, fundi, skrifstofur eða aðra starfsemi
- Tvö salerni, annað með ræstiaðstöðu og möguleika á sturtu
- Um 3 metra lofthæð.
- Gott geymslurými með aðgangi að sameiginlegum neyðarútgangi
- Neðri hæðin er í dag notað sem geymslurými.
Efri hæð – 125 fm
- Stálstigi með glerhandriði tengir hæðir
- Bjart rými með parketi og möguleika á svalahurð
- Eldhús með góðri vinnuaðstöðu og stórri eyju
- Auka herbergi sem hentar vel sem skrifstofa eða svefnherbergi
- Baðherbergi með sturtu úr hertu gleri, upphengdu salerni og flísum
- Tengi fyrir þvottavél og þurrkaras
Utandyra
Mjög stórt bílaplan / sérafnotareitur fyrir framan húsið
Eignin hefur verið byggð og innréttuð af vandvirkni og býður upp á fjölbreytta möguleika til framtíðarnýtingar.
Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala, í síma 661-7788 eða á netfanginu [email protected]
Við hjá STOFN FASTEIGNASÖLU vinnum með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN FASTEIGNASALA – setjum þig í fyrsta sætið.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.