Upplýsingar
Byggt 2025
197,7 m²
4 herb.
2 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Glæsileg penthouse íbúð á efstu hæð með þaksvölum til suðurs. Mikið er lagt í innréttingar og tæki sem gefur íbúðinni klassískt yfirbragð. Gæða eign fyrir fólk sem kann að meta fágun í hönnun. Lofthæð er 3,7m.Frábærlega hönnuð íbúð með sér svölum úr hjónasvítunni. Íbúðin gefur rými fyrir auka svefnherbergi. Möguleiki á glæsilegum arni í stofu. Stórar þaksvalir með fallegum stórum útiflísum. Þar er jafnframt tengi er fyrir hitaveitupott og frábær aðstaða til útiveru. Í bílakjallara fylgja tvö einkastæði, 23,6 m2 bílskúr og rúmgóð geymsla. Inn af hjónaherbergi er innangegnt í fataherbergi og sér baðherbergi.
- Birt stærð: 197,7 m2
- Þar af geymsla: 11,2 m2
- Þar af bílskúr: 23,6 m2
- Herbergi: 3-4
- Einkastæði: B07,B08
- Þakgarður: 63,7m2
**Sækja söluyfirlit**
**Skoða heimasíðu verkefnis**
Hönnun:
Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna. Gluggar nema við gólf og eru hærri til lofts til að hámarka flæði birtu og útsýnis. Gólfhiti er í öllum íbúðum og einnig verða vélræn loftskipti í þeim sem tryggir aukin loftgæði. Hafstudio og Studio Homestead komu að hönnun innréttingannna og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra og munu kaupendur hafa tækfæri á að velja mismunandi liti og áferðir fyrir innréttingar sem og flísar á baðherbergjum. Íbúðirnar hafa einstakt útsýni til fjallahringsins og yfir borgina.
Í eldhúsinu verður eyjan, borðplötur ásamt bakplötu úr Quarts steini sem er sérframleiddur á Ítalíu frá Santamargherita. Íbúðirnar eru búnar stórglæsilegum og vönduðum tækjum frá Siemens. Þau koma úr studioLine línunni sem að býður úrval glæsilegra tækja sem gera matreiðsluna sérlega þægilega og ánægjuríka. Úrvalstæki þar sem gott jafnvægi ríkir á milli nýjunga og stílhreinnar hönnunar sem er óháð tíð og tíma. Á baðherbergjum verða blöndunartækin innbyggð með gun metal lit. Quartz borðplata á baðinnréttingu. Öll tæki hvort sem er fyrir eldhús eða bað eru valin með tilliti til gæða og endingar.
Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. Aðkeyrsla að bílakjallara er á tveimur stöðum, frá Nóatúni og Laugavegi.
Afhending miðast við haust 2026
Nánari upplýsingar veita fasteignasalar Eignamiðlunar:
Kjartan Hallgeirsson 824-9093 [email protected]
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson 864-5464 [email protected]
Kári Sighvatsson 899-8815 [email protected]
Gunnar Bergmann Jónsson 839-1600 [email protected]
Brynjar Þ. Sumarliðason 896-1168 [email protected]
Rögnvaldur Örn Jónsson 660-3452 [email protected]
Unnar Kjartansson 867-0968 [email protected]
Lilja Guðmundsdóttir 649-3868 [email protected]
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook