Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Vesturhús 20

112 Reykjavík

139.900.000 kr.

565.024 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2041292

Fasteignamat

129.100.000 kr.

Brunabótamat

119.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1994
svg
247,6 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

FASTEIGNASALAN TORG KYNNIR: STÓRKOSTLEGT ÚTSÝNI - ÍBÚÐ Á TVEIMUR HÆÐUM MEÐ BÍLSKÚR Í TVÍBÝLI Í RÓLEGU OG FJÖLSKYLDUVÆNU HVERFI: MIKIL LOFTHÆÐ - STÓRIR NÝIR ÚTSÝNISGLUGGAR. Íbúðin skiptist í forstofu, sameiginlegt rými með eldhús og stofu/borðstofu, sjónvarpshol, 3 svefnherbergi, rúmgott gluggalaust herbergi með lofttúðum, miðjurými, gestasnyrtingu og stórt baðherbergi. Inn af forstofu er þvottahús og þaðan er innangengt í bílskúr. Hleðslustöð.  Hitalagnir í stétt við inngang. Húsið er staðsett syðst í hlíðum húsahverfis í Grafarvogi, í fallegu og grónu umhverfi og með stórkostlegt útsýni til suðurs, allt frá Bláfjöllum og út á sundin. Húsaskóli, sundlaug,  leikskóli og skíðabrekka í næsta nágrenni. Sérstök og falleg íbúð sem vert er að skoða. Bókið skoðun og fáið nánari upplýsingar hjá Jóhönnu Kristínu Tómasdóttur, lgfs. í síma 837-8889 eða hjá [email protected]

Nánari lýsing: Húsið er tvíbýli, steinsteypt og byggt 1994. Komið er inn í forstofu, þá forstofuhol og á vinstri hönd eru 2 svefnherbergi og stigi niður á neðri hæð. Þvottahús er innaf forstofu og innangengt í bílskúr. Stórt baðherbergi til vinstri inn af forstofuholi. Gengið upp 3 þrep og þá er sjónvarpshol til vinstri og upp önnur þrjú þrep er komið í stofu/borðstofu og eldhús. Stórir gluggar með miklu útsýni og útgengt á tvennar svalir. Úr forstofuholi liggur stigi niður á jarðhæð og þar er millirými, nú nýtt sem skrifstofa, hjónaherbergi með fataherbergi, og gluggalaust barnaherbergi með loftskiptikerfi. Gestasnyrting. 
Forstofa: Með flísum á gólfi og fjórföldum fataskáp. Þvottahús á hægri hönd þaðan sem er innangengt í bílskúr.
Þvottahús: Ágætlega rúmgott með plastparketi á gólfi. Innangengt í bílskúr með geymsluaðstöðu í gryfju og háalofti.
Baðherbergi: Mjög rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, baðkari og sturtuklefa. Skúffuinnrétting við vask. Auk þess er hár skápur og annar lægri við vegginn á móti. Innfelld lýsing að hluta.
Svefnherbergin: Tvö svefnherbergi, ágætlega rúmgóð bæði með fataskápum og háum rúmum. Harðparket á gólfi.
Sjónvarpshol: Á millipalli með flísum á gólfi. Tengi fyrir gervihnattamóttakara. Útgengt á svalir og yfirbyggðan pall.
Eldhús/stofa/borðstofa: Stórt opið og bjart rými með mikilli lofthæð og stórum gluggum með stórkostlegu útsýni. Sprautulökkuð eldhúsinnrétting með eyju og góðu skápaplássi. Flísar á gólfi eldhúss. Granít borðplötur og granít á vegg við vask. Stofan er mjög björt og rúmgóð með viðarpanel á hluta veggs. Harðparketi á gólfi. Útgengt á suðvestursvalir.
Jarðhæð: Gengið niður úr forstofuholi. Á jarðhæð er millirými, sem nýtt er sem skrifstofa, tvö svefnherbergi og snyrting.
Hjónaherbergi: Með litlum glugga og góðu fataherbergi innaf.
Barnaherbergi: Mjög rúmgott herbergi, gluggalaust en með lofttúður í loftinu.
Snyrting: Með salerni, vaski og lítilli innréttingu.
Garður: Gróinn suðurgarður.
Viðhald: 2023 voru útsýnisgluggarnir algjörlega endurnýjaðir, þ.e. bæði gluggi og gler. Í þakglugga var sett nýtt gler sl. sumar. Nýlega voru frárennslislagnir lagðar úr eldhúsi og þvottahúsi á neðri hæðinni út í brunn. Raflagnaefni var endurnýjað fyrir tveim árum. Múr var lagfærður og húsið málað að utan nýlega.
Falleg sérhæð með mikilli lofthæð, stórum útsýnisgluggum og fjórum svefnherbergjum í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Grafarvoginum. Göngustígar í allar áttir og stutt í skóla og leikskóla. Víðátturmikið útsýni yfir borgina. Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, lgfs. Í síma 837-8889 eða hjá [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari
ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. jún. 2014
46.000.000 kr.
39.500.000 kr.
247.6 m²
159.532 kr.
8. feb. 2013
43.700.000 kr.
39.000.000 kr.
247.6 m²
157.512 kr.
15. maí. 2009
44.380.000 kr.
59.900.000 kr.
247.6 m²
241.922 kr.
20. jún. 2006
36.640.000 kr.
49.700.000 kr.
247.6 m²
200.727 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone