Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Úlfar Þór Davíðsson
Ingimar Ingimarsson
Stefán Jóhann Ólafsson
Brandur Gunnarsson
Davíð Ólafsson
Gunnlaugur Þráinsson
Böðvar Sigurbjörnsson
Börkur Hrafnsson
Einar Pálsson
María Mjöll Guðmundsdóttir
Victor Levi Ricciardi Ferrua
Reynir Erlingsson
Upplýsingar
svg
Byggt 1972
svg
219,1 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

**** SELD MEÐ FYRIRVARA****

Borg Fasteignasala kynnir til sölu: Sérstaklega glæsilegt raðhús að Ljósalandi 3 í Fossvogshverfi. Húsið er bjart og vel skipulagt  í fjölskylduvænu og eftirsóttu hverfi í Fossvogi.
Eignin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, eldhús, borðstofu, stofu, sjónvarpshol, fjögur svefnherbergi, aðalbaðherbergi, þvottahús, geymslu og auka rými á neðstu hæð sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika þar er einnig lítil snyrting. Bílskúr fylgir eigninni.


Bóka einkaskoðun: [email protected]

Samkvæmt skráningu HMS er heildarstærð hússins 219,1 m2, neðri hæð er 93.5 m2, efri hæð er 101,6 m2 og bílskúr 24,0 m2, byggingarár er 1972.

Húsið er á þremur pöllum efst er stofa, fjölskyldurými og útgengi út a suðursvalir.
Gengið er inn á mið palli. Þar er forstofa, gestasnyrting, borðstofa og eldhús.
Á neðsta palli eru fjögur herbergi, baðherbergi, geymsla/þvotthús og lítið baðherbergi.
Útfrá hjónaherbergi er útgengi út á suðurverönd og út frá geymslu/þvottahúsi er útgengi að framanverðu.


Nánari lýsing:
Forstofan er flísalögð, þar er fatahengi og  snyrtilegt gestabaðherbergi. 
Borðstofa og eldhús: Falleg gluggaröð er í borðstofu og eldhúsi. Eldhúsinnréttingin er sérsmíðuð af SBS innréttingum. Hvítir skápar og neðri skápar, gráleitt granít í borðplötum og gráar nettar flísar á milli innréttinga. Efri skápar eru viðarlitaðir með gleri.
Háfur fyrir ofan innréttingu. Eldhústæki, ofn og helluborð eru frá Siemens.
Stofan er björt með stórum gluggum eftir allri suðurhliðinni , útsýnið er ótrúlegt og alltaf gott veður í Fossvogi. Loftið er með hvítsprautuðum viðarpanel og innfeldum ljósum. Parketið er sérstaklega fallegt. Hluti stofunnar er nýtt sem sjónvarps-/fjölskyldurými. Útgengi er út á suðursvalir.
Á neðsta palli eru herbergin, baðherbergi og geymsla/þvottahús.
Þrjú svefnherbergi snúa í suður, eitt frekar lítið og tvö rúmgóð. Frá hjónaherbergi er útgengi út á verönd  og í rúmgóðan garð.
Bakatil á neðsta palli, er rúmgott rými sem nýtist á marga vegu, þar er herbergi, miðrými og frá miðrými er gengið inn á litla snyrtingu og þvottahús/geymslu. Gólfefni þar er bæði teppi og parket. Gott skápapláss.
Dökku Mustang flísarnar eru á ganginum og parket á herbergjum.
Á ganginum eru fataskápar og baðherbergið er innst.
Baðherbergi: Þar er sturta, veggir eru flísalagðir með liggjandi hvítum flísum og dökkar flísar eru á gólfi sem og á vegg við upphengt salerni. Hvít innrétting með granít í borðplötu. 
Garðurinn er gróinn og með viðar verönd meðfram öllu húsinu sem nýtist vel.
Bílskúr: Nýstandsettur 2021 og flottur með Epoxy á gólfi, „ný“ bílskúrshurð með gönguhurð, tengi fyrir hleðslustöð.

Nokkur atriði sem eigendur vilja koma á framfæri:
  • 2001 - Loft í stofu sprautað og innfelld ljós frá Lumex sett í loftið.               
  • 2004 - Eldhús og borðstofa innréttuð af SBS innréttingar ehf.        
  • 2004 - Pallur smíðaður og markísa sett.       
  • 2015 - Dúkur á markísu endurnýjaður
  • 2005 - Neðri hæð tekin í gegn - baðherbergi endurnýjað, gangur og bað flísalagt, herbergi parketlögð og skápar á gang og hjónaherbergi smíðaðir.
  • 2005 - Þak endurnýjað.            
  • 2008 - Skipt um glugga, gler og svalahurðir í stofu og hjónaherbergi.        
  • 2010 - Skápar settir upp á neðsta pallinum, SBS innréttingar.
  • 2016 - Skipt um útidyrahurð, Börkur ehf.
  • 2020 - Skipt um gler í eldhúsi, borðstofu og herbergjum sunnan megin.
  • 2020 - hiti settur í stétt og tröppur
  • 2021 - Bílskúrar klæddir, skipt um bílskúrshurð og skúrinn tekinn í gegn. Samtímis var þakið á skúrunum malbikað og bílastæði uppi stækkað.
  • 2021 - Parket í stofu endurnýjað, verktaki var Fasteignafegrun og viðhald ehf.
  • 2023 - Ljós á palli og svölum endurnýjuð.   
  • Gólfefni er dökkar Mustang flísar og eikarparket.
  • Ekki er starfandi húsfélag í raðhúsalengjunni en góð samvinna hefur verið um viðhald og framkvæmdir í gegnum árin.
„Á besta stað í Fossvogi“ er fullyrðing sem á við um þetta raðhús að Ljósalandi 3.
Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttasvæði Víkings og útivistina í Fossvogsdalnum. Fossvogurinn er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, aðkoma góð og öll þjónusta innan seilingar.
Ljósaland 3 er eign sem hefur verið vel við haldið, eign sem hentar fjölskyldu sem ætlar að stækka og dafna í einu vinsælasta hverfi Reykjavíkur.

Nánari upplýsingar veitir
Gunnlaugur Þráinsson Lögg. fasteignasali, í síma 844 6447, tölvupóstur [email protected].
Victor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali, í síma 868 2222 - [email protected]
 
 

 
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
 
 

img
Gunnlaugur Þráinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Borg Fasteignasala
Síðumúla 23, 108 Reykjavík
Borg Fasteignasala

Borg Fasteignasala

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
phone
img

Gunnlaugur Þráinsson

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
Borg Fasteignasala

Borg Fasteignasala

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
phone

Gunnlaugur Þráinsson

Síðumúla 23, 108 Reykjavík