Lýsing
Íbúðin skiptist í forstofu, hol, þrjú svefnherbergi, stofu, eldhús/borðstofu, baðherbergi. Eldhús hefur verið flutt í borðstofu og þ.a.l eru í dag 3 svefnherbergi. Um er að ræða vel skipulagða eign með miklu næði og fallegu útsýni í húsi sem hefur fengið gott viðhald gegnum árin.
** Eignin er SELD og var einungis 5 daga á sölu. Er með áhugasama kaupendur að sambærilegri eign í hverfinu **
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í lítið anddyri sem bætt var við með því að færa inngang íbúðar. Ekki skráð í fermetratölu eignar.
Hol: úr rúmgóðri forstofu er komið er inn í bjart og rúmgott hol með skápum. Þaðan er gengið í aðrar vistarverur íbúðar.
Stofa/borðstofa: samliggjandi með rennihurð á milli. Eldhús hefur verið fært frá upprunalegu skipulagi og komið fyrir í borðstofu, vel heppnuð breyting. Svalir til suðausturs. Útsýni
Eldhús: Eldhúsið var nýlega fært frá upprunalegu skipulagi og komið fyrir í borðstofu. Falleg dökk innrétting. Gott skápapláss, stæði fyrir uppþvottavél. Virkilega falleg útkoma. Útsýni.
Herbergi I: Hjónaherbergi, rúmgott með skápum.
Herbergi II: ágætt herbergi með skápum.
Herbergi III: ágætt herbergi.
Baðherbergi: endurnýjað 2013 á afar smekklegan máta. Steyptur sturtubotn með glerskilrúmum. Flísar á gólfi og veggjum. Nett skúffuinnrétting undir handlaug. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Opnanlegur gluggi.
Geymsla/ þvottahús: ca 10 fm geymsla er í kjallara, sem er ekki í inn í fermetratölu eignar. Sameiginlegt þvottahús. Snyrtileg sameign.
Framkvæmdir:
2014: Fóðrun á frárennslislögnum.
2017: Þak málað. Járn á þaki var endurnýjað 2001.
2018: Gluggar og gler endurnýjað í stofu/borðstofu. Svalahurð endurnýjuð. Gler í gluggum í herbergjum endurnýjað.
2020: Hús múrviðgert og sléttir fletir málaðir.
2025: Íbúðin nánast öll endurnýjuð. Eldhús fært inn í stofu, ný innrétting og tæki. Ný gólfefni og gólflistar á allri íbúðinni (nema baðherbergi). Nýjar hurðir á öll svefnherbergi og baðherbergi, öll íbúðin máluð. Nýr ofn í herbergi þar sem áður var eldhús. Nýr ljóskastari í eldhús, dimmer settur í öll herbergi.
Um er að ræða frábærlega staðsetta eign miðsvæðis í Reykjavík. Stutt í verslanir, þjónustu, leikskóla, grunnskóla, íþróttastarf, gönguleiðir, háskóla, menntaskóla, miðbæinn, stofnbrautir og samgönguleiðir.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigríður Lind Eyglóardóttir, [email protected] / 8994703
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.