Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt og glæsilegt 130 m2 heilsárshús/sumarhús sem stendur á 6.700 m2 eignarlóð við Hafravatnsveg 64, í útjaðri byggðar rétt við Hafravatn, 271 Mosfellsbæ. Frábær staðsetning. Svæðið verður með læstu símahliði við afleggjara frá Hafravatnsvegi og er í aðeins 10 mín akstri frá Höfðuðborgarsvæðinu.
Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, geymslu/inntaksrými, forstofu, eldhús, stofu og borðstofu. Mikil lofthæð, innbyggð lýsing og stórir gólfsíðir gluggar.
Húsið skilast fullbúið að utan og innan með grófjafnaðri lóð ásamt bílastæði. Húsið er með yfirbyggðu anddyri og yfirbyggðri 11 m2 verönd til suðurs, gólfsíðir útsýnisgluggar og rennihurð út á verönd.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:
Forstofa er með parketi á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa er í björtu opnu rými með góðri lofthæð og parketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg innrétting með eyju. Quartz steinn á borðum. Í innréttingu er niðurfelldur vaskur, innbyggð uppþvottavél, ofn og helluborð með innbyggðum gufugleypi. Gert er ráð fyrir innbyggðum ísskáp í innréttingu. Úr rýminu er rennihurð út á lóð í suðvesturátt.
Gangur er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 (Hjónaherbergi) er með parketi á gólfi. Við hlið/inn af hjónaherbergi er baðherbergi.
Baðherbergi nr. 1 er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi. Gluggi er á baðherberginu.
Baðherbergi nr. 2 er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Gluggi er á baðherberginu.
Geymsla/inntök er við hlið inngangs í húsið með flísum á gólfi.
Verð kr. 138.900.000,-
Skilalýsing:
Utanhúss: Fullbúið frístundahús á einni hæð byggt úr timbri á steypta plötu.
Útveggir eru klæddir með timburklæðningu.
Þak er hefðbundið með soðnum þakpappa, raflagnir er í þakkanti.
Gluggar: Ál/tré gluggar með þreföldu gleri, ál/tré inngangshurðar og svalahurðir úr áli/tré.
Lóð og bílastæðum er skilað grófjafnað með þjappaðir möl.
Innanhúss: Eignin skilast fullbúin án fataskápa.
Heitt vatn: Húsið er tengt hitaveitu og hitað upp með gólfhitakerfi.
Kalt vatn: Aðgangur að sameiginlegri borholu.
Fráveita: Rotþró/setlögn
Ljósleiðari: Tilbúinn til tengingar í rafmagnstöflu.
Ídráttarrör: Til staðar fyrir rafmagn og heitan pott.
Símahlið: Uppsetning í maí 2026.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.