Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1947
282,1 m²
7 herb.
3 baðherb.
5 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Aukaíbúð
Opið hús: 19. febrúar 2026
kl. 17:00
til 17:30
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Mjög fallegt samtals 282,1 fm einbýlishús við Sörlaskjól 18 í Vesturbænum. Tvöfaldur bílskúr, 42,9 fm. Húsið skiptist m.a. í tvær samliggjandi stofur, eldhús, fimm herbergi og þrjú baðherbergi. Auk þess hefur verið innréttuð stúdíóíbúð í kjallara. Svalir til suðvesturs. Gróinn garður með nýlegri timburverönd. Mjög stórt bílaplan er fyrir framan bílskúr. Frábær staðsetning í Vesturbænum örstutt frá sjávarsíðunni. Stutt í verslanir, sundlaug, kaffihús og fl.NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA: Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861 8511, [email protected] og Sverrir Kristinsson lg. fasteignasali
Nánari lýsing.
Aðalhæð:
Aðalhæð skiptist í forstofu, tvær stofur, eldhús, herbergi, baðherbergi og hol. Komið er inn í flísalagða forstofu með skápum. Tvær rúmgóðar samliggjandi parketlagðar stofur. Mjög falleg tvöföld svalahurð. Svalir til suðvesturs. Hægt er að ganga út í garð frá svölum. Falleg sérsmíðuð eikarinnrétting er í eldhúsi. Helluborð með gasi. Háfur úr stáli. Gólf er flísalagt. Mjög rúmgott parketlagt herbergi (tvö herbergi samkvæmt teikningu). Baðherbergið er flísalagt og með baðkari. Gluggi er á baðherbergi.
Rishæð:
Rishæð skiptist í opið parketlagt rými og rúmgott parketlagt hjónaherbergi með skápum. Möguleiki væri að breyta skipulagi í risi en samkvæmt teikningu eru þrjú herbergi í risi.
Kjallari:
Sér inngangur er í kjallara en einnig er innangengt frá holi. Í kjallara eru tvö rúmgóð parketlögð herbergi, baðherbergi með sturtu, þvottahús, geymsla og hol. Einnig hefur verið innréttuð lítil stúdíóíbúð með sér baðherbergi. Baðherbergi í kjallara voru endurnýjuð fyrir um 5 árum síðan.
Mjög falleg eign á eftirsóttum stað í Vesturbænum.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. jan. 2017
75.850.000 kr.
95.000.000 kr.
237.7 m²
399.663 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026