Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Svavar Friðriksson
Sigríður Rut Stanleysdóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 1973
svg
148,7 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir : 
Vel skipulagt 123,3fm fjögurra herbergja raðhús ásamt 25,5fm bílskúr, samtals : 148,7fm. Óskráður ca.123fm kjallari er undir húsinu og er þar 3 herbergja íbúð með sér inngangi. Þannig að heildarfermetrar eignarinnar er ca. 272,1fm. Efri hæðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, 3 herbergi, baðherbergi og þvottahús. Neðri hæðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, borðstofu, 2 herbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslur. Fallegur suður garður með verönd og heitum potti. Eignin er í leigu. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á [email protected]

NÁNARI LÝSING : 

Efri hæð : 
Komið er inn í forstofu með skáp, flísar á gólfi. Eldhús með snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, flísar á milli skápa, parket á gólfi. Borðstofan er við eldhúsið með parketi á gólfi. Mjög rúmgóð stofa með parketi á gólfi, útgengt út á verönd með heitum potti. Fallegur afgirtur garður. Hjónaherbergi með skáp, parket á gólfi, útgengt út á verönd. Svefnherbergi með skáp, parket á gólfi. Annað minna herbergi með parketi á gólfi. Baðherbergi með baðkari og sturtuklefa, innrétting við vask, upphengt salerni, flísar á gólfi og veggjum. Þvottahús með máluðu gólfi, útgengt út á framlóð. Frá Þvottahúsi er stigi niður í kjallarann.
Neðri hæð : 
Sérinngangur er niður í íbúðina. Nýlega steyptar tröppur með hitalögn í. Komið í anndyri með parketi á gólfi. Eldhús með eldri innréttingu, parket á gólfi. Stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Tvö rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfi. Salerni með flísum á gólfi. Þvottahús með sturtuaðstöðu, flísar á gólfi. Einnig er í kjallara geymslur.
Garður :
Fallegur garður sem snýr í suður frá stofu afgirtur með verönd og heitum potti. Fyrir framan hús er garður hellulagður af hluta til.
Bílskúr : 
Eignini fylgir 25,5fm bílskúr sem er með rafmagni, hita og vatni. Sjálfvirkur hurðaropnari ásamt gönguhurð. Á móti bílskúr er sér bílastæði og er búið að leggja 3 fasa rafmagn vegna hleðslustöðvar í stæðið.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á [email protected]

 

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone