Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Borga Harðardóttir
Þyrí Guðjónsdóttir
Vista
svg

85

svg

71  Skoðendur

svg

Skráð  3. feb. 2026

fjölbýlishús

Kaplaskjólsvegur 51

107 Reykjavík

59.900.000 kr.

1.018.707 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2026350

Fasteignamat

55.600.000 kr.

Brunabótamat

28.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1960
svg
58,8 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 4. febrúar 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Kaplaskjólsvegur 51, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 4. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

VALBORG FASTEIGNASALA KYNNIR: Bjarta og fallega 2ja herbergja íbúð að Kaplaskjólsvegi 51, 107,Rvík.
Eignin er samtals 58,8 fm þar af geymsla 3,1 fm.
Eignin er vel skipulögð og skiptist í stofu með útgengi á suðursvalir, eldhús, borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Farið var í yfirgripsmiklar framkvæmdir 2019 þar sem veggur og hurðar í stofu voru fjarlægðar og eyja með rafmagni byggð í staðinn. Lagt var parket frá Birgisson og skipt um eldhúsinnréttingu. Vegghillan í eldhúsinu er sérsmíðuð inn í innréttinguna sem og fataskápurinn í svefnherberginu sem er frá Fríform. Þá var öll íbúðin máluð af fagmönnum.

Frábær staðsetning, beint á móti  íþróttafélaginu KR, göngufæri við Melabúðina, Kaffihús vesturbæjar og sundlaug vesturbæjar. 


Nánari lýsing:
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð með útgengi á suður svalir, viðarparketi á gólfi
Eldhús: Hvít innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél
Svefnherbergi: Rúmgott með skápum, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt, baðkar með sturtu, skápur.
Geymsla: 3,1 fm.
Sameign:
Þvottahús og þurrkherbergi
Hjóla og vagnageymsla: Útgengi er í sameiginlegan garð bakvið hús. 

Framkvæmdir á húsinu: 
Skipt var um glugga sem voru komnir á tíma í öllum íbúðum hússins árið 2023 og árið 2024 var öll þakklæðningin endurnýjuð.
Húsfélagið er í umsjón Eignaumsjónar.

Nánari upplýsingar veitir:
Maria Guðrún Sigurðardóttir viðsk.fræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 8201780, tölvupóstur [email protected]



Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.100,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. nóv. 2021
35.850.000 kr.
20.000.000 kr.
58.8 m²
340.136 kr.
24. júl. 2019
31.400.000 kr.
32.500.000 kr.
58.8 m²
552.721 kr.
29. nóv. 2018
28.950.000 kr.
32.500.000 kr.
58.8 m²
552.721 kr.
15. mar. 2017
24.700.000 kr.
30.000.000 kr.
58.8 m²
510.204 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone