Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Steindór Guðmundsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2004
svg
229,4 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali ásamt HÚS Fasteignasölu kynna í einkasölu:  Snyrtilegt og rúmgott 156,9 fm fimm herbergja einbýlishús, sólskáli 30 fm ásamt 42,5 fm sambyggðum bílskúr samtals 229,4 fm byggt árið 2005 og stendur húsið á virkilega fallegri og stórri 4.870 fm lóð við Bjarkarbraut 11 í Reykholti.  Möguleiki er fyrir minniháttar atvinnustarfsemi á lóðinni, m.a. gistingu.  Húsið er kanadískt timburhús, klætt með Canexel klæðningu og stallað járn er á þaki.  Allt umhverfi og lóð til fyrirmyndar.  Hellulögn, sólpallar og skjólgirðingar.  Talsvert landslag er á lóðinni og í gegnum hana rennur lítill lækur.  Lítið gróðurhús/vinnuskúr er á lóðinni og mikið af fallegum plöntum og trjám. 

Nánari lýsing: Fjögur svefnherbergi eru í húsinu, eitt þeirra skrifstofa/sjónvarpsherbergi og annað hjónaherbergi með góðum fataskápum og úr því eru dyr út í garð og það þriðja, barnaherbergi.  Í bílskúr er hjónasvíta með sér baðherbergi og sér inngangi út í garð..  Við aðalinngang í húsið er gott bíslag og fyrir innan rúmgóð flísalögð forstofa með fatahengi.  Borðstofa og stofa í opnu og björtu rými þar sem útgengt er út á timbursólpall með heitum potti.  Í stofu er arinn.  Í eldhúsi er snyrtileg endurnýjuð/endurunninn innrétting með góðu skápaplássi og gönguhurð út á sólpall. Endurnýjað baðherbergið er með flísalagðri sturtu og glervegg, fallegri innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél/þurrkara í vinnu hæð.  Á gólfum eru flísar og húsið er kynnt með svæðaskiptum gólfhita.  Stór vandaður og bjartur sólskáli er við húsið 30 fm að stærð og stór rennihurð úr honum út á stóran sólpall.  

Húsið stendur á mjög fallegum stað í Reykholti.  Reykholt er fallegt þorp vel staðsett, í Bláskógabyggð á "Gullna hringnum".  Fagurt útsýni og stutt í margar af fallegustu náttúruperlum Suðurlands s.s. Gullfoss, Geysi, Þingvelli o.fl.  Í Reykholti er nýlegur leikskóli, grunnskóli, sundlaug og íþróttahús. Þar er að finna stórar garðyrkjustöðvar sem rækta grænmeti, blóm, ber og runna og má þar m.a. nefna Friðheima og Espiflöt.  Einnig eru góðir/vinsælir veitingastaðir, vinsælt tjaldsvæði og félagsheimilið Aratunga. Margvísleg afþreying í ferðaþjónustu í næsta nágrenni. Ca 30 mín akstur á Selfoss og rúmlega klst á Höfuðborgarsvæðið.

Í alla staði vel skipulögð, snyrtileg og vönduð eign staðsett í barnvænu umhverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla. 

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali s. 891-8891 eða [email protected]
Hringið og bókið skoðun.


 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, fyrstu kaupendur 0,4%, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 

HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. ágú. 2021
45.700.000 kr.
60.500.000 kr.
199.4 m²
303.410 kr.
16. jún. 2015
29.300.000 kr.
33.700.000 kr.
199.4 m²
169.007 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum