Lýsing
Miklaborg kynnir: Fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð með leigjutekjur í þríbýlishúsi að Seljavegi 21 í hjarta Reykjavíkur. Frábær staðsetning í gamalgrónu hverfi þar sem stutt er í verslanir, skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofuhol sem tengir öll rými íbúðar. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu alrými með gluggum sem ná í gegnum íbúðina. Útgengi er á suður-svalir frá svefnherbergi og frá borðstofu er útsýni til sjávar. Tvö svefnherbergi sem bæði eru rúmgóð. Baðherbergi er með baðkari með sturtuaðstöðu. Í kjallara er 19 fm útleiguherbergi/geymsla með glugga sem hefur aðgang að sameiginlegu baðherbergi í kjallara. Í sameign er sameiginlegt þvottahús og hjóla- og vagnageymsla. Útgengi er í snyrtilegan sameiginlegan garð frá neðstu hæð.
Viðhald
Skipt um klóak- og neysluvatnslagnir í vesturhlið hússins árið 2015
Skipt um glugga og svalahurð árið 2018
Skipt um neysluvatns- og klóaklagnir í austurhlið hússins, og klóak út í brunn árið 2019
Skipt um þak árið 2025
Nánari upplýsingar veita
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða [email protected]
Þröstur Þórhallsson löggiltur fasteignasali í síma 897-0634 eða [email protected]