Lýsing
Um er að ræða vel skipulagða og snyrtilega 117.3 fm 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð auk bílskúrs í 11 íbúða fjölbýlishúsi á þessum vinsæla stað.
Tvennar svalir eru með íbúð og er fallegt útsýni til norð-vesturs yfir höfuðborgarsvæðið úr íbúð og af svölum.
Íbúðin sjálf er 93.1 fm og henni fylgir bílskúr sem er 24.2 fm og er í húseigninni sjálfri en ekki í bílskúrslengjunni við hús.
Húsið er í góðu ástandi og hefur það fengið gott viðhald, úti sem inni. Sameign er snyrtileg og er nýbúið að skipta um teppi í sameign, mála og fleira.
Íbúðin er að mestu leiti öll upprunanleg og vel með farin og eru sömu eigendur af íbúð frá upphafi.
Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða [email protected]
FÁÐU SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.
Eignin skiptist í:
Forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, bílskúr og sérgeymslu sem staðsett er í sameign.
Sameiginlegt þvottaherbergi á jarðhæð og tvö rúmgóð þurrkherbergi.
Nánari lýsing eignar:
Tveir inngangar eru inn í stigahúsið vestan megin frá bílaplani og svo austan megin við húsið.
Komið er inn í rúmgóða forstofu með stórum fataskáp.
Stór og björt stofa/borðstofa með útgengi út á norð-vestur svalir.
Eldhús er opið að hluta til inní stofu og er með upprunanlegri innréttingu með efri og neðri skápum, flísar á vegg milli skápa.
Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum og er úttgengt er á suður-svalir þaðan úr hjónaherbergi.
Tvö góð barnaherbergi á herbergjagangi.
Baðherbergi er rúmgott með flísum á gólfi og veggjum, rúmgóð innrétting með skápum undir vaski, Walk-in sturtuklefi með glerskilrúmi.
Sérgeymsla er á jarðhæð ásamt sameiginlegu þvottaherbergi og þurrkherbergjum.
Rúmgóður 24.2 fm. bílskúr sem staðsettur er á neðstu hæð eignarinnar, í bílskúrnum er vatn, rafmagn og er bílskúrshurð rafdrifin.
Gólfefni: Teppi, flísar og korkflísar á gólfum eignar.
Verulega snyrtilegur stigagangur og er öll sameign til fyrirmyndar.
Hluti af gluggum eignarinnar hafa verið endurnýjaðir.
Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð, sundlaug, verslanir og stofnbrautir. Örstutt í náttúruperluna Elliðaárdal.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða [email protected]
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat