Upplýsingar
Byggt 1953
248,8 m²
9 herb.
3 baðherb.
6 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Opið hús: 11. febrúar 2026
kl. 17:30
til 18:00
Lýsing
Háborg og Þórunn Páls lgf kynna með stolti, glæsilegt mikið endurnýjað einbýli með sex svefnherbergjum og fallegum suðurgarði á þessum rólega stað miðsvæðis í höfuðborginni. Húsið er 248,8 fm þar af er bílskúr 32 fm. Til viðbótar eru 24,9 fm undir súð.
Glæsilegt eldhús, stórar stofur, gestasnyrting og eitt herbergi á miðhæð. Hjónaherbergi með fataherbergi inn af á efri hæð ásamt tveimur barnaherbergjum og baðherbergi. Í kjallara er stórt sjónvarpshol, tvö barnaherbergi, þvottahús og gott baðherbergi. Glæsilegur pallur út af stofu með tvennum tröppum niður í garð. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Páls lgf s.773-6000 og [email protected].
Gengið er inn á miðhæð hússins. Strax á vinstri hönd er gestasnyrting, en á hægri hönd er 10,1 fm skrifstofa sem vel má nota sem svefnherbergi. Herbergið lokast með rennihurð. Beint af augum er gengið inn í stóra samliggjandi stofu og borðstofu sem tengist stórum og góðum sólpalli til suðurs með tvöfaldri svalahurð. Pallurinn er eftir allri suðurhlið hússins og hluta vesturhliðar og tengist garðinum með tröppum bæði á suðurhlið og vesturhlið. Gott skápapláss er í forstofunni sem opnast bæði inn í stofuna og eldhúsið.
Eldhúsið var fært á núverandi stað og gert á vandaðan hátt árið 2004 með steini í borðplötum og fallegum eikarinnréttingum með góðu skápaplássi. Eldhúsið er bjart með gluggum á tvo vegu, auk þess sem það opnast inn í borðstofuna sem er með stórum gluggum að garði. Hægt er að loka milli eldhúss og borðstofu með rennihurð.
Gengið er upp á efri hæðina úr forstofunni. Strax til vinstri glæsilegt baðherbergi með bæði sturtuklefa og baðkari og opnanlegum glugga. Hjónaherbergið er stórt og bjart með stórum kvistglugga og góðu fataherbergi inn af. Annað barnaherbergið er bjart og rúmgott með góðum skápum og kvistglugga, en hitt er minna með venjulegum glugga og þakglugga. Það er nú notað sem geymsla. Skv teikningu er þetta eitt 31,7 fm herbergi.
Gengið er niður í kjallarann úr forstofu auk þess sem það er inngangur í hann bæði á norður og austurhlið hússins. Þar er mjög rúmgott sjónvarpshol og tvö mjög góð barnaherbergi,annað 11,3 fm og hitt 9,9 fm með 2,4 fm fatageymslu inn af. Þar er einnig gott baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir sturtu.
Í kjallara er einnig gott þvottahús með innréttingum í vinnuhæð og útgangi á austurhlið hússins.
Bílskúrinn er staðsettur á lóðinni, en hann er 32 m2 með góðri gönguhurð á austurhlið hans.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð frá árinu 2003. Þar ber helst að nefna frárennslislagnir og stór timburpallur það ár með tvöfaldri svalahurð úr borðstofu. Þakið var endurnýjað árin 2005/2006 alveg niður í sperrur sem voru þykktar og bætt í einangrun. Settir kvistir og þakgluggi ásamt nýrri álklæðningu. Einnig voru baðherbergið á efri hæð og gestasnyrtingin á miðhæð gerð það ár.
Árið 2013 var garðurinn tekinn í gegn, einfaldaður og settar glæsilegar nýjar stéttar og hleðslur.
Sérlega heillandi og fallegt hús á með mörgum herbergjum og góðu flæði á þessum vinsæla og fjölskylduvæna stað.
Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og [email protected]