Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
fjölbýlishús

Melhagi 17

107 Reykjavík

113.500.000 kr.

953.782 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2027676

Fasteignamat

89.200.000 kr.

Brunabótamat

54.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1961
svg
119 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
Opið hús: 13. febrúar 2026 kl. 12:30 til 13:00

Lýsing

*OPIÐ HÚS FÖSTUDAGINN 13.FEBRÚAR KL 12:30-13:00*


Móeiður Svala lögg. fasteignasali og Miklaborg kynna í einkasölu: Melhaga 17 - Björt og afar vel skipulögð 5 herbergja hæð í vel viðhöldnu fjórbýlishúsi á besta stað í Vesturbænum.

Eignin er 119 fm með þremur svefnherbergjum, opnu og björtu alrými og tvennum svölum sem snúa bæði til suðurs og norðurs. Byggingaréttur fyrir bílskúr fylgir. Einstök staðsetning í hjarta Vesturbæjar, þar sem allt er í göngufæri.


Eignin er laus við kaupsamning!


Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899-8278 eða [email protected]


Nánari lýsing: Komið er inn í rúmgóða og bjarta eign þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda fallegt og opið alrými. Stórir gluggar til suðurs og vesturs tryggja mikla birtu.
Úr borðstofu er gengið út á stórar suðvestursvalir sem njóta sólar stóran hluta dags og fram á kvöld.

Eldhús er stórt og bjart, opið við borðstofu, með fallegri eikarinnréttingu og góðu skápaplássi. Stór gluggi snýr til vesturs.

Svefnherbergin eru þrjú. Hjónaherbergið er rúmgott, með góðu skápaplássi og útgengi á svalir til norðausturs. Tvö barnaherbergi eru björt og með stórum gluggum.


Baðherbergi var endurnýjað árið 2021, er flísalagt með walk-in sturtu, speglaskáp og hvítri innréttingu með nægu geymsluplássi.
Parket er á öllum gólfum íbúðarinnar nema á baðherbergi.


Byggingaréttur fyrir bílskúr fylgir eigninni, sem er verulegur kostur á þessu eftirsótta svæði.


Geymslur og sameign

Tvær sérgeymslur fylgja íbúðinni:

  • Sérgeymsla I: 3,6 fm, staðsett á 3. hæð
  • Sérgeymsla II: 3,5 fm, staðsett í kjallara

Sameiginlegt þvottaherbergi er í kjallara með lakkað gólfi, sér tenglum fyrir hverja hæð, þvottasnúrur og gluggum til norðausturs.


ATH: Upprunaleg teikning af íbúð.


Lóð

Lóðin er fullfrágengin og fallega ræktuð, sameiginleg með öðrum eignarhlutum hússins.

Viðhald og endurbætur (samkvæmt eiganda)
  • Ný rafmagnstafla í sameign (lok 2025)
  • Niðurfall/aðalstammi hreinsaður og myndaður (lok 2025). Verktaki telur að skipta þurfi um hluta lagna síðar
  • Ný gólfefni (2022)
  • Nýjir gluggar, þak og baðherbergi (2021)


Staðsetning

Einstaklega eftirsótt staðsetning í Vesturbænum, örstutt í alla helstu verslun og þjónustu, m.a. Melaskóla, Hagaskóla, Vesturbæjarlaug, kaffihús, bakarí og íþróttasvæði KR.


Allar nánari upplýsingar veitir
Móeiður Svala lögg. fasteignasali
Sími: 899-8278
Netfang: [email protected]

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. júl. 2018
53.600.000 kr.
65.900.000 kr.
119 m²
553.782 kr.
28. nóv. 2012
28.550.000 kr.
37.500.000 kr.
119 m²
315.126 kr.
28. sep. 2007
24.370.000 kr.
41.900.000 kr.
119 m²
352.101 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík