Lýsing
Miklaborg kynnir: Sérlega fallegt 133,7m2 einbýlishús úr timbri á þremur hæðum. Þar af er 24.5 m2 bílskúr. Steyptur kjallari. Húsið er talsvert endurbyggt. Í því eru 3 útleigueiningar í dag. Hæð og ris, samtals 69,5 m2 með 2 svefnherbergjum undir súð, 2 stofum og 2 snyrtingum. 2ja herbergja 39,7 m2 íbúð í kjallara. Ekki með fullri lofthæð. Bílskúr er innréttaður sem stúdíóíbúð. Húsið stendur á 618 fermetra eignarlóð á afar eftirsóttum stað í Skerjafirði í Reykjavík. 3 bílastæði á lóðinni.
Leitið upplýsinga hjá Friðrik í s. 6161313
NÁNARI LÝSING: Húsið er á steyptum kjallara. Aðkoma að húsinu er austanmegin og þar eru 3 bílastæði á lóðamörkum. Gengið er upp trétröppur á 1. hæð. Komið inn í forstofu með góðum endurnýjuðum fataskápum. Á hæri hönd er fallegur viðarstigi upp á efri hæðina / risið. Þar fyrir innan er lítil snyrting með sturtu. Áfram gengið inn í alrými sem hefur verið opnað frá fyrri herbergjaskipan. Þar eru setu-/sjónvarpsstofa, stofa og opið eldhús. Er komið er upp á stigapall efri hæðar eru 2 svefnherbergi undir súð með fallegum kvistum. Góð lofthæð, þar sem opnað hefur verið upp í mæni. Lausar innréttingar og skápar. Fallegir burðarbitar setja svip á rýmin. Inn af hjónaherberginu er baðherbergi með baðkari og sturtu, handklæðaofni og fallegri innréttingu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baðherberginu.
Í kjallara er gengið um tröppur vestan á húsinu. Skert lofthæð er í kjallara. Komið inn í gang með fataskáp, hillum og einnig skáp fyrir þvottavél. Inn af forstofu er snyrting með sturtu. Gengið áfram inn í alrými/stofu með eldhúsinnréttingu í enda. Þar inn af er svefnherbergi með góðum skápum.
Bílskúr er 24,5 m2 og hefur verið innréttaður sem stúdíóíbúð með góðri eldhúsinnréttingu og snyrtingu með sturtu.
Innra skipulagi hússins hefur verið mikið breytt og er það ekki í samræmi við samþykktar teikningar. Greinargott yfirlit eiganda um framkvæmdir fylgir eigninni.
Afar falleg og mikið endurnýjuð eign á 618 m2 eignarlóð á eftirsóttum stað í Skerjafirði. Eignin er laus til afherndingar 15. maí n.k.
Allar nánari upplýsingar veitir Friðrik Þ. Stefánsson lögmaður og lögg.fasteignasali í s. 616 1313 og [email protected]