Lýsing
Íbúðin skiptist í anddyri, hol, geymslu, 2 baðherbergi, eldhús, stofur, sjónvarpsherbergi (sem áður var svefnherbergi), svefnherbergi með útgengi út á þaksvalir og aðalsvefnherbergi með fataherbergi og sér baðherbergi. Tæknigeymsla er á hæðinni.
Samtals 215 fm þakíbúð með 30 fm þaksvölum.
Íbúðin sjálf er skráð 158 fm á efstu hæð auk 36 fm bílskúrs og geymslum í kjallara.
Lyfta beint inní íbúð, eina íbúðin á hæðinni. Geymsla á stigagangi.
Fallegt parket er í stofu, svefnherbergjum og í eldhúsi, lagt í fiskibeinamynstri.
Eldhús með nýjum tækjum, Liebherr ísskáp, Miele tæki og gaseldavél. Afar falleg og vönduð innrétting í dökkum viði.
Tvö baðherbergi, flísar á baðherbergjum, gólfhiti er í íbúðinni. Stofa með útsýni. Stofan er með fallegri kamínu.
Glæsilegt útsýni til suðurs og norðurs. 2-3 svefnherbergi. 2 baðherbergi, og annað þeirra er með þvottavélaaðstöðu.
Rafdrifnar gardínur eru í íbúðinni. Rennihurð frá stofu og svefnherbergi út á þaksvalir til suðurs.
Í kjallara eru lokaður bílakjallara, og inní honum er tvöfaldur 36,3 fermetra bílskúr sem fylgir íbúðinni, sem og tvær geymslur sem eru að stærðinni 8,5 fm og 9,5 fm, á geymslugangi.
Innanhús arkitekt: Ingunn Helga Hafstað / ARKTIKA. Ekkert var til sparað við hönnun og endurnýjun íbúðarinnar.
Nokkur atriði um nýlegar breytingar:
Eirvík, nýtt eldhús innréttingar og tæki , Miele ofnar , Liebherr tvöfaldur sambyggður ískápur, Franke vaskur, upphengd blöndunartæki.
Ísleifur Jónsson baðherbergi , nýjar innéttingar og speglar Duravit, blöndunartæki frá, Hansgrohe Axor.
GKS Innihurðir sérsmíðaðar, húnar Arne Jacobsen, smellulæsingar.
Birgisson , flísar á baðherb. Gegnheilt niðurlímt parket lagt í fiskibeinamynstri.
Gólfhiti
Lýsing frá Lumex
Öryggiskerfi frá Securitas.
Kamína / arinn sem virkar frábærlega, bæði hægt að hafa opinn eða lokaðan, sérinnfluttur.
Hljóðlausar segul læsingar á öllum inni hurðum
Hægt að ganga úr öllum rýmum út á svalir sem snúa í suður, 4 rýmum.
Mjög góð hljóðvist, heyrist ekkert inn í íbúð frá Laugaveginum
Myndavéladyrasími
Baklýsing bak við allar gardínur í öllum rýmum
Allar gardínur rafstýrðar með fjarstýringu í öllum rýmum.
Staðsetning eignarinnar er frábær í hluta miðbæjarins sem hefur verið í mikilli endurnýjun. Frábært framtíðar hverfi í mikilli endurnýjun rétt við Hlemm svæðið þar sem Hlemmur mathöll er í nokkurra mínútna fjarlægð og stutt er á Kjarvalsstaði, Klambratún og Sundhöll Reykjavíkur. Laugavegurinn og miðbærinn í göngufæri með öllum sínum verslunum, veitingastöðum og þjónustu. Hér er einstök eign á ferðinni fyrir vandláta, á frábærum stað í hjarta borgarinnar. Bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða með tölvupósti á [email protected]
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.