Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Benedikt Ólafsson
Sveinbjörn Rosén Guðlaugsson
Eggert Maríuson
Tinna Bergmann Halldórsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Kirkjulundur 6

210 Garðabær

69.600.000 kr.

809.302 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2070975

Fasteignamat

65.550.000 kr.

Brunabótamat

51.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1990
svg
86 m²
svg
2 herb.
svg
Laus strax

Lýsing

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR:  Einstaklega bjarta og vel skipulagða 86 fm. tveggja herbergja íbúð að Kirkjulundi 6, 210 Garðabæ, þar af er 5,9 fm. sérgeymsla í kjallara sem eru óskráðir ferm. skv. þjóðskrá. Eignin er samtals birt stærð séreignar 81fm. skv. Þjóðskrá.. Eignin er skráð á 2. hæð (gengið inn af jarðhæð). Íbúðin er í litlu og rólegu fjölbýlishúsi fyrir 60 ára og eldri. Stutt í alla helstu þjónustu á Garðatorgi; í göngufæri eru verslanir, heilsugæsla, bókasafn og góðar samgöngur.

Nánar tiltekið eign merkt: Kirkjulundur 6, fastanúmer 207-0975, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi. Eignin er samtals birt stærð séreignar 81 fm. skv. Þjóðskrá. Eigninni tilheyrir sérgeymsla í kjallara (utan fermetratölu), sérbílastæði í lokaðri, upphitaðri bílageymslu og svalir með fallegu útsýni. Lyfta er úr bílakjallara.

ATH. Eignin er laus við kaupsamning.

Ásett verð: 69.600.000 kr.


*Smelltu hér til að skoða myndband um eignina*



*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*
  • Sérgeymsla í kjallara (utan fermetratölu skv. ÞÍ/eignaskiptayfirl.)
  • Sérbílastæði í lokaðri, upphitaðri bílageymslu – lyfta úr bílakjallara.
  • Svalir með útsýni.
  • Stórir gluggar/ útbyggt gluggasvæði við borðstofurými.
  • Veislusalur í sameign í eigu íbúa hússins.
  • Góð staðsetning – stutt í þjónustu á Garðatorgi.

Eignin skiptist í:
Forstofu/hol, stofu og borðstofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi (með tengi fyrir þvottavél), svalir, sérgeymslu í kjallara og sérbílastæði í bílakjallara.

Nánari lýsing:
Forstofa/hol: Flísalögð forstofa með fataskápum.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa; útgengt á svalir og útsýni. Við borðstofu er útbyggt gluggasvæði/stórir gluggar sem gefa mikla birtu. Parket á gólfi.
Eldhús: Gallerý-eldhús með ljósum innréttingum og hvítum flísum milli skápa; rafmagnseldavél og borðpláss. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum.
Baðherbergi: Flísalagt gólf, sturtuklefi, innrétting og tengi fyrir þvottavél; stuðningsgrind við sturtu.
Geymsla: 5,9 fm. sérgeymsla í kjallara – ath. utan fermetratölu skv. Þjóðskrá/eignaskiptayfirlýsingu.
Bílastæði: Sérmerkt stæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu. Lyfta úr bílakjallara.
Sameign: Veislusalur í eigu íbúa hússins með eldhúsi og snyrtingum innaf.


Nánari upplýsingar
Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali – STOFN Fasteignasala
Sími 661 7788 • Tölvupóstur [email protected]
STOFN Fasteignasala – Setjum þig í fyrsta sætið.
Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu. Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Benedikt Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
STOFN Fasteignasala ehf.
Lyngási 11, 210 Garðabæ
STOFN Fasteignasala ehf.

STOFN Fasteignasala ehf.

Lyngási 11, 210 Garðabæ
img

Benedikt Ólafsson

Lyngási 11, 210 Garðabæ
STOFN Fasteignasala ehf.

STOFN Fasteignasala ehf.

Lyngási 11, 210 Garðabæ

Benedikt Ólafsson

Lyngási 11, 210 Garðabæ