Opið hús: Fálkastígur 3, 225 Garðabær. Eignin verður sýnd sunnudaginn 15. febrúar 2026 milli kl. 14:00 og kl. 15:00.
Lýsing
Forstofa er flísalögð með fataskáp og flísum á gólfi
Baðherbergi er inn af forstofu, flísalagt í hólf og gólf með steyptri sturtu með glervegg og fallegri innréttingu.
Stofan er með aukinnu lofthæð með innfelldri lýsingu og útsýni til Bessastaða. Parket á gólfi.
Borðstofan er með flísalagt gólf og mikið gluggarými. Þaðan er útgengt út á hellulagða verönd og lóð.
Eldhúsið er flísalagt með stórri og fallegri innréttingu með innbyggðum tækjum og stórri eldhúseyju með helluborði. Innbyggð Miele tæki eru ofn, gufuofn, kaffivél, örbylgjuofn og tvær litlar uppþvottavélar. Steinn í borðum. Útgengt úr eldhúsi út á lóð.
Sjónvarpsstofa er milli stofu og herbergjagangs. Þar er parket á gólfum og aukin lofthæð með þakgluggum.
Svefnherbergin eru fjögur með parketi á gólfum og góð fataskápapláss í þremur herbergjanna. Í því fjórða eru innbyggðir skápar.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með steyptri sturtu með glervegg, baðkari og fallegri innréttingu með steini í borðum.
Þvottahús og geymsla er inn á litlum gangi með hurð út á lóð. Gott skápapláss á ganginum og góð innrétting í þvottahúsinu.
Bílskúrinn er 52 fm með stórri bílskúrshurð, flísum á gólfi og hillum.
Lóðin er 916 fm eignarlóð og er afgirt að hluta með hellulögðum veröndum og fallegum gróðri. Bílastæði fyrir 2 -3 bíla
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða [email protected]
----------------------------------------------------------
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat