Opið hús: Hestavað 3, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 2 05. Eignin verður sýnd sunnudaginn 22. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Birt stærð eignar er 117,3 fm og skiptist hún í forstofu, gang, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, þvottahús, sérgeymslu í sameign auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu.
Nánari upplýsingar veitir Mirabela Aurelia Blaga Löggiltur fasteignasali, í síma 699-0911, tölvupóstur [email protected].
Nánari lýsing eignar:
Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Stofa og eldhús eru í opnu og rúmgóðu rými. Eldhús er með fallegri innréttingu, eyju með helluborði og háfi, auk góðs borð- og geymslupláss. Parket er á gólfi og útgengt er á skjólgóðar svalir.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og fataskápum.
Þvottahús er innan íbúðar og er með hillum, borðplötu með vaski og flísum á gólfi.
Baðherbergi er með baðkari og sturtu, snyrtilegri innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og flísalögðum veggjum og gólfi.
Bílastæði er í lokaðri bílageymslu og er gott aðgengi í stæðið.Búið er að leggja rafmagn fyrir bílahleðslustöð fyrir hvert bílastæði í bílakjallaranum. Aðstaða er til að þvo bíla í bílageymslu.
Geymsla íbúðarinnar er í sameign í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign
Húsið var múrað og málað árið 2021.
Stigagangs svalir á öllum hæðum voru múraðar árið 2024.
Nánari upplýsingar veitir Mirabela Aurelia Blaga Löggiltur fasteignasali, í síma 699-0911, tölvupóstur [email protected].
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.