Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 1976
svg
238,7 m²
svg
9 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Laus strax
Opið hús: 9. apríl 2026 kl. 17:30 til 18:30

OPIÐ HÚS: Eignin Stuðlasel 6, 109 Rvk. verður sýnd fimmtudaginn 9. apríl nk. milli kl. 17:30 og kl. 18:30

Lýsing

RE/MAX &  HERA BJÖRK Lgf. ([email protected]  / 774-1477 ) KYNNA AFTUR Í SÖLU: 
Glæsilegt og einstaklega heillandi einbýlishús með bílskúr, fallegum garðskála og grónum, skjólgóðum garði á eftirsóttum stað við Stuðlasel 6 í Seljahverfi.
* Möguleiki á 5 svefnherbergjum. 
* Eignin getur verið laus við kaupsamning.
* Notalegur garðskáli (21,6 m²) með heitum potti. 

* Húsið er teiknað af Helga Hafliðasyni arkitekt.
* Vönduð, vel byggð og viðhaldin eign sem ber með sér alúð eigenda.


** SMELLIÐ HÈR til að bóka tíma í OPIÐ HÚS / SKOÐUN **
** SMELLIÐ HÉR til að fá SÖLUYFIRLITIÐ sent samstundis **


Eignin er skráð 238,7 m² hjá Fasteignaskrá en heildarstærð er samtals 260,3 m² og samanstendur af forstofu, eldhúsi, búri, stofu, borðstofu, fjórum herbergjum (möguleiki á 5), baðherbergi, gestasalerni, þvottahúsi og geymslu, bílskúr (29,6 m²), garðskála (21,6 m² óskráður) og einstaklega fallega grónum garði.

** SMELLTU HÉR og skoðaðu þessa eign í 3-D , þrívíðu umhverfi. **

Nánari lýsing eignar
Forstofa: Gengið er inn í flísalagða og snyrtilega forstofu sem setur strax tóninn fyrir heimilið. Þaðan er opið inn í hlýlegt sjónvarpshol. Gestasalerni er inn af forstofu. 
Gestasalerni: Flísalagt gólf, handlaug með vaskaskáp og gluggi með opnanlegu fagi sem veitir birtu og ferskleika.
Hol/gangur: Rúmgott sjónvarpshol og gangur sem tengir saman rými heimilisins á fallegan og flæðandi hátt. Flísar á gólfi.
Eldhús: Sérsmíðuð og vönduð innrétting með góðu vinnuplássi og búri sem eykur bæði þægindi og geymslumöguleika.
Borðstofa: Staðsett inn af eldhúsi með beinu útgengi út í garð – fullkomið fyrir samverustundir og gestaboð.
Stofa: Bjart og opið rými með fallegri lofthæð þar sem arinn setur hlýjan og notalegan svip. Stórir gluggar hleypa inn ríkulegri birtu og gegnheilt upprunalegt parket prýðir gólfið.
Garðskáli:  Gengið út í garðskála (2.7x8m= 21,6 m²) með heitum potti og þaðan er rennihurð út á góða verönd og fallega gróin garð með gosbrunni. Útgengt í notalegan garðskála (2,7 x 8 m = 21,6 m²) með heitum potti, einstakt rými til slökunar. Þaðan er rennihurð út á góða verönd og áfram  út í fallegan, gróinn garð með gosbrunni.
Svefnherbergisálma: Gengið upp nokkur þrep í rólega og afskekkta svefnherbergisálmu. Þar eru í dag 3 herbergi en auðvelt að bæta við fjórða. Hjónaherbergið með parketi á gólfi og fataherbergi. Innangengt er úr herberginu inn á baðherbergi. Svefnherbergi I er rúmgott með parket á gólfi. Nýtist í dag sem sjónvarps- og vinnuherbergi, samsett úr tveim herbergjum en auðvelt að breyta. Svefnherbergi II er einnig með parket á gólfi og fataskáp. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er bæði baðkar og sturta, salerni og rúmgóður vaskaskápur með tveimur handlaugum, góðum hirslum og spegli með baklýsingu. 
Á neðsta pallinum (jarðhæð) er Svefnherbergi III, sem er rúmgott með fataskáp og parket á gólfi. Þar er einnig vel skipulagt þvottahús með góðri innréttingu fyrir þvottavél/þurrkara, skolvaski og annari innréttingu með skápum. Nýlegt epoxy á gólfi. Geymsla er inn af þvottahús. Möguleiki er að gera þarna aukaíbúð með sérinngangi ef vill. 
BÍlskúr: Góður og vel útbúinn 29,6 m² bílskúr með hita, vatni og rafmagni ásamt hleðslustöð fyrir rafbíla. Fyrir framan er hellulagt og upphitað bílaplan.
Garður: Stór, skjólgóður og einstaklega fallegur garður með hleðslum, beðum og upplýstum göngustíg. Útgengt er úr garðhúsi út í gróinn garð sem snýr til suðurs.

Húsinu hefur verið mjög vel viðhaldið í gegnum árin. Gler á suður hlið var endurnýjað og sólgler sett í þá glugga. Annað gler er upprunaleggt. Harðviður er í öllum gluggum og einhverjir þeirra komnir á viðhaldsstig. Þak var yfirfarið sl. haust og allar rennur hreinsaðar. Líða fer að viðhaldi á þaki. Ofnar hafa verið yfirfarnir og hitastillar endurnýjaðir á fjórum þeirra.

Einstök eign í þessu vinsæla og fjölskylduvæna hverfi, frábærlega staðsett innarlega í botnlanga. Stutt er í skóla og leikskóla, fallegar gönguleiðir liggja um hverfið og Salalaugin er í þægilegri göngufjarlægð. Þá er gott aðgengi að helstu umferðaræðum og almenningssamgöngum með tengingum um allt höfuðborgarsvæðið.

Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið.

Allar nánari upplýsingar um eignina veita Hera Björk Lgf.
Hera Björk, löggiltur fasteignasali í síma 774-1477 eða á netfangið [email protected] 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali til Sýslumanns.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
_______________________________________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.
Ég hef starfað við Fasteignasölu frá haustinu 2016 þegar ég ákvað að venda mínu kvæði í kross, fara í nám og hefja störf sem fasteignasali. 
Ég legg mig fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá mér færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga.
Hafðu samband í dag í síma 774-1477  eða á netfangið [email protected]

RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone