Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Kríuás 19

221 Hafnarfjörður

72.900.000 kr.

750.000 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2248962

Fasteignamat

69.250.000 kr.

Brunabótamat

54.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2002
svg
97,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax
Opið hús: 16. febrúar 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Kríuás 19, 221 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 03 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 16. febrúar 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Rúmgóð og björt 3ja herberbergja útsýnisíbúð með sér inngangi á 3. hæð (efstu) með rúmgóðum svölum til vesturs/norðvesturs í fallegu fjölbýlishúsi við Kríuás 19 í Hafnarfirði. Einstaklega glæsilegt útsýni er úr eigninni. Sér þvottaherbergi innan íbúðar. Nýjar innihurðir og útidyrahurð.  Nýtt parket er á íbúðinni. Sérgeymsla er staðsett á jarðhæð ásamt vagnageymslu og hjólageymslu. Eignin er laus við kaupsamning. Frábær staðsetning í næsta nágrenni við Áslandsskóla ásamt tveimur leikskólum

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 97,2 fm. og þar af er geymsla 2,9 fm. 

Nánari lýsing:

Forstofa rúmgóð með innbyggðum skáp og flísum á gólfi. 
Gangur með parket á gólfi. 
Stofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Mikið útsýni er úr stofunni. Útgengt er út á svalir úr stofunni. 
Eldhús er opið að hluta við stofu með flísum á gólfi. Snyrtileg eldhúsinnrétting, helluborð, með tengi fyrir uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, flísar á milli skápa og eldhúskrókur með fallegum eldhúsglugga.  
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parket á gólfi. 
Svefnherbergi með skáp pg parket á gólfi. 
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, snyrtileg innrétting, flísar á gólfi og veggjum. 
Þvottaherbergi mjög rúmgott, vaskur og auðvelt að nýta hluta þess sem geymslu. Flísar á gólfi. 

Geymsla íbúðar er staðsett á jarðhæð.
Hjóla- og vagnageymsla er sameiginleg og er staðsett á jarðhæð. 

Glæsilegt útsýni er úr eigninni út Reykjanesið, Keili, Akranesi, Snæfellsjökli, Esjunni, út á sundin og víðar og er húsið er staðsett á jaðarlóð. 
Lóðin er afar snyrtileg með tyrfðum flötum á baklóð og malbikuðum stæðum fyrir framan hús. Í sumar hafa staðið yfir viðhaldsframkvæmdir við húsið sem nú eru á lokametrunum. Ráðgjafi var fenginn til að meta ástand hússins og farið var í þær framkvæmdir sem hann mælti með. Unnið hefur verið að smávægilegum múrviðgerðum, skipt um þá glugga sem voru komnir á tíma, og húsið hefur verið sílanborið og málað. Framkvæmdirnar eru nú við það að ljúka og seljandi greiðir kostnaðinn við þær að fullu.

Frábær staðsetning í næsta nágrenni við Áslandsskóla ásamt tveimur leikskólum (Tjarnarás og Stekkjarás). Stutt í útivistarparadís, sem liggur við bakgarðinn, með glæsilegum göngu- og hjólaleiðum sem liggja m.a. að Hvaleyrarvatni, Ástjörn og víðar.


Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu [email protected]
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. júl. 2025
65.300.000 kr.
118.000.000 kr.
10302 m²
11.454 kr.
14. apr. 2021
43.250.000 kr.
47.000.000 kr.
97.2 m²
483.539 kr.
10. jún. 2014
23.050.000 kr.
27.500.000 kr.
97.2 m²
282.922 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík