Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Vera Sigurðardóttir
Sjöfn Hilmarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Vista
svg

26

svg

25  Skoðendur

svg

Skráð  12. feb. 2026

atvinnuhúsnæði

Járnslétta 4 - 0105

162 Reykjavík

24.800.000 kr.

440.497 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2540832

Fasteignamat

2.060.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2026
svg
56,3 m²
svg
0 herb.
svg
Sérinngangur

Lýsing

***Domusnova kynnir TIL SÖLU vel staðsett geymslu- eða lagerrrými við Járnsléttu 4, Reykjavík***  
Birt stærð 56,3fm. 

SÆKIÐ SÖLUYFIRLIT HÉR
***SKOÐIÐ VEFSÍÐU VERKEFNISINS HÉR


Nýtt glæsilegt atvinnu-frístunda- og/eða hobbý rými á malbikaðri afgirtri lóð við Járnsléttu 4, Reykjavík.  Samtals eru 60 bil í þremur aðskildum húsum á sameiginlegri lóð.  Breidd húsnæðis ca. 5,6m. og lengd 9,6m.  
Fasteignin er byggð úr stálgrind.
Útveggir eru klæddir með vottuðum PIR stál-samlokueinignum með microrib áferð.  Litur RAL 7016.
Bilið afhendist fullfrágengið utan sem innan (byggingastig 7) með sérstæði fyrir framan eignarhlutann.
Vegghæð við útvegg er 5,5 metrar og 6,7 metrar innst í hverju bili
Innkeyrsludyr eru  H3,5m x B3,5m frá ANGLEMIR  Rafmagnsmótor á innkeyrsluhurð með fjarstýringu.   
Inngöngudyr frá PROCURA við hlið innkeyrsluhurða og gluggi fyrir ofan inngöngudyr.  
Gólf afhendist vélslípað
Skolvaskur og blöndunartæki uppsett.  
Skolprör í gólfi á hverju bili sem gefur möguleika á uppsetningu fyrir klósett.
Niðurfall í gólfi.
Hitaveita er sameiginleg fyrir öll rýmin og er húsnæðið hitað upp með hefðbundnu ofnakerfi. Varmaskiptir er við inntak heita vatnsins. Inntök húsa eru öll staðsett við enda húss.  
Afhending í febrúar/mars 2026.
Raflögn með 3ja fasa tengill 16A og 16A sértengill.  Sér rafmagstafla fyrir hvert bil.  Lýsing í loftum frágengin með góðum iðnaðarlömpum.
Lóð skilast fullfrágengin, malbikuð með niðurföllum, girt af og með sjálfvirku bómuhliði með fjarstýringu tengt símanúmerum eigenda á hverju innnkeyrslubili. 
Snjóbræðsla 0,5m frá útvegg 
Útilýsing frágengin fyrir ofan innkeyrsluhurðar hvers geymslubils tengd sólúri eða sambærilegt og tengd sameiginlegum rafmagnsmæli.
Sorptunnuskýli er á lóð næst hliði.  
HÚSFÉLAG er stofnað fyrir alla verðandi eigendur að bilum á þessari lóð til að tryggja m.a. góða umgengni um lóð og hús. 
Kvöð um virðisaukaskatt er á eigninni.

Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone