Opið hús: Brákarsund 1, 310 Borgarnes, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 16. febrúar 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Björt og skemmtileg fjögurra herbergja neðri hæð við Brákarsund í Borgarnesi. Vel skipulögð eign í timbureininga húsi. Eignin skilast fullfrágengin með gólfefnum.
Skv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 90 fm
Nánar um eignina:
Rúmgott anddyri með flísum á gólfi.
Eldhús og stofa mynda eitt alrými.
Eldhús með dökkri innréttingu frá HTH. Helluborð og bakaraofn.Tengi fyrir uppþvottavél. Öll tæki frá AEG. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Parket á gólfi.
Stofa með parketi á gólfi.
Baðherbergi með glugga. Innrétting með frá HTH. Walk in sturta. Upphengt salerni. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi með góðum skáp. Parket á gólfi.
Herbergi II með parket á gólfi.
Herbergi III með parketi á gólfi.
Fjögur bílastæði eru á lóð.
Allar innréttingar, skápar við inngang og í hjónaherbergi eru frá HTH og eldhústæki frá AEG. Parket eignar eru frá Álfaborg. Innihurðir frá Birgisson.
Loftskiptakerfi með endurvarma frá Systemair í eigninni.
Lóðin er þökulögð en hellulagt er að framan móts við innganga og stiga. Sérafnotareitir eru hellulagðir.
Skemmtileg og vel staðsett eign með óhindruðu sjávarútsýni á þessum rólega stað í Borgarnesi.
Athygli er vakin á því að myndir í auglýsingu eru af sambærilegri eign til þess að átta sig á innréttingum og skipulagi. Þó hafa verið gerðar breytingar frá skilalýsingu seljanda en þó aðallega litaval skápa í anddyri og herbergja og borðplötu eldhúss.
Allar nánari upplýsingar um eignina veita Kristján Baldursson Löggiltur Fasteignasali í síma 867-3040 eða [email protected] eða Sólveig Regína Biard Löggiltur Fasteignasali í síma 869-4879 eða [email protected]
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.